Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 25. október 2004. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 6. september til 25. október 2004. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐUR
1. Hvernig getum við haldið okkur á jákvæðum nótum þegar við flytjum ræðu um einhvern þátt kristinnar starfsemi? [be bls. 203 gr. 3-4]
2. Hvað er endurtekning og hvers vegna er hún mikilvæg? [be bls. 206 gr. 1-4]
3. Hvernig getum við lagt áherslu á stef ræðunnar? [be bls. 210 gr. 1-5, ásamt ramma]
4. Hvernig getum við valið aðalatriði í ræðu sem við eigum að flytja? [be bls. 212 gr. 1-4]
5. Af hverju þurfum við að gæta þess að hafa ekki of mörg aðalatriði? [be bls. 213 gr. 2-4]
VERKEFNI NR. 1
6. Af hverju gæti fólk, sem var uppi fyrir flóðið, hafa átt erfitt með að trúa því að heimurinn í kringum það myndi líða undir lok? [w02 1.3. bls. 5-6]
7. Af hverju er það eftirtektarvert að samtímamenn Jesú hafi kallað hann „meistara“ en ekki „lækni“? (Lúk. 3:12; 7:40) [wE02 1.5. bls. 4 gr. 3; bls. 6 gr. 6]
8. Hvernig leggja Orðskviðirnir 11:24, 25 áherslu á mikilvægi þess að eiga sem mestan þátt í boðunarstarfinu? [wE02 15.7. bls. 30 gr. 2-4]
9. Hvaða siðferðilega deilumál vakti uppreisnin í Eden og hverjar hafa verið afleiðingar uppreisnarinnar? (1. Mós. 3:1-6) [w02 1.10. bls. 6 gr. 1, 3-4]
10. Hvernig er hægt að ákvarða hvenær sönn guðsdýrkun var endurvakin í Jerúsalem? [si bls. 285 gr. 5]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvers vegna reiddist Jehóva Bíleam fyrir að fara með mönnum Balaks fyrst hann sagði honum að gera það? (4. Mós. 22:20-22)
12. Getur eiginmaður kristinnar konu ógilt heit hennar? (4. Mós. 30:6-8)
13. Hvað tákna griðaborgir nútímans? (4. Mós. 35:6) [br3 bls. 14 gr. 8]
14. Ber að skilja bókstaflega boðið í 5. Mósebók 6:6-9 um að ‚binda lög Guðs á hönd sér og hafa þau sem minningarbönd á milli augna sinna‘?
15. Merkja orðin „klæði þín hafa ekki slitnað“ aðeins að fatabirgðir Ísraelsmanna hafi verið endurnýjaðar? (5. Mós. 8:4)