Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. ágúst
„Heldurðu að við eigum einhvern tíma eftir að búa við stjórn sem leysir vandamál mannkyns? [Gefðu kost á svari.] Jesús kenndi lærisveinum sínum að biðja um slíka stjórn. Við finnum bænina í Matteusi 6:9, 10. [Lestu.] Í þessu blaði kemur fram af hverju ríki Guðs skarar fram úr stjórnum manna og hvernig það verður mannkyninu til blessunar.“
Vaknið! júlí-september
„Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvers vegna við eldumst? [Gefðu kost á svari.] Þegar við lesum útskýringu Biblíunnar á því kemur í ljós að Guð hefur gert okkur kleift að lifa að eilífu. [Lestu Jesaja 25:8.] Í þessu blaði er fjallað um núverandi hugmyndir um öldrun.“
Vaknið! júlí-september
„Flestir kannast við frásögu Biblíunnar af sköpun mannsins og syndafallinu. Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér í hverju fyrsta syndin var fólgin? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan 1. Mósebók 2:17] Í greininni sem byrjar á bls. 14 er útskýrt hvernig fyrstu hjónin gerðu uppreisn með því að óhlýðnast þessu boði.“