Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða Þekkingarbókina og Haltu vöku þinni! Febrúar: Nálægðu þig Jehóva. Mars: Farsælt fjölskyldulíf — hver er leyndardómurinn?
◼ Minningarhátíðin árið 2008 verður haldin eftir sólsetur laugardaginn 22. mars. Þessi langi fyrirvari ætti að auðvelda söfnuðum, sem nota sama ríkissal og þurfa að verða sér úti um önnur salarkynni, að tryggja sér viðeigandi húsnæði í tíma. Öldungarnir ættu að semja við rekstrarstjórn leigusalarins um að ekki verði truflun af völdum annarrar starfsemi í húsinu svo að minningarhátíðin geti farið friðsamlega og skipulega fram. Vegna þess hve minningarhátíðin er þýðingarmikil ætti öldungaráðið að velja einn af hæfari öldungunum til að flytja ræðuna í stað þess að skiptast einfaldlega á um að flytja hana eða nota sama bróðurinn ár eftir ár. Öldungur af hinum smurðu ætti að flytja ræðuna ef hann er til staðar og er fær um það.