Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn apríl-júní
„Heldurðu að öll trúarbrögð séu Guði velþóknanleg? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir því sem Jesús segir hérna. [Lestu Matteus 15:8, 9.] Í þessari grein er rætt um það hvort Guð viðurkenni hvaða trúarbrögð sem er.“ Sýndu greinina á bls. 9.
Varðturninn apríl-júní
„Heldur þú að Guð hlusti á allar bænir? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir hvað Jesús sagði um þetta. [Lestu Matteus 6:7.] Í þessari athyglisverðu grein er að finna svör Biblíunnar við fjórum algengum spurningum um bænir.“ Sýndu greinina sem hefst á bls. 16.
Vaknið! apríl-júní
„Margir hafa töluverðar áhyggjur af peningum, ekki síst eins og efnahagsástandið er núna. Hvað finnst þér um stöðu mála? [Gefðu kost á svari.] Mig langar til að sýna þér góð ráð sem er að finna í Biblíunni. [Lestu 1. Tímóteusarbréf 6:8, 10.] Í þessu blaði er bent á fleiri góð ráð í Biblíunni sem geta hjálpað fólki að fara skynsamlega með peninga og hafa hugarfrið.“
Vaknið! apríl-júní
„Okkur finnst öllum mikilvægt að eiga góða vini. Hvaða eiginleika finnst þér vinur þurfa að hafa? [Gefðu kost á svari.] Sjáðu hvernig sönnum vini er lýst í Biblíunni. [Lestu Orðskviðina 17:17.] Í greininni er bent á hvernig hægt sé að velja sér góða vini og vera góður vinur sjálfur.“ Sýndu greinina sem hefst á bls. 18.