Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar: Hvað kennir Biblían? og Lífið – varð það til við þróun eða sköpun? Febrúar: Lífið – varð það til við þróun eða sköpun? og Farsælt fjölskyldulíf – hver er leyndardómurinn? Mars: Hvað kennir Biblían? og Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Apríl: Varðturninn og Vaknið!
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis, þegar hann heimsækir söfnuðina eftir 1. febrúar, ber heitið: „Leggurðu traust þitt á Jehóva?“
◼ Við viljum hvetja alla öldunga og sérstaklega umsjónarmenn starfshópa til þess að bjóða öllum boðberum aðstoð við að fylla út yfirlýsinguna um læknismeðferð eins og hvatt er til í bréfi dagsettu 15. nóvember 2006. Gætið sérstaklega að þörfum aldraðra boðbera, þeirra sem eru einir í sannleikanum og þeirra sem hafa ekki íslensku að móðurmáli. Öldungar eiga að gæta þess að hafa ekki áhrif á skoðanir annarra þegar þeir veita þessa aðstoð.
◼ Athugið að í þessari útgáfu af Ríkisþjónustunni er viðauki með heitið: „Notarðu þessa bæklinga?“ Ef þú hefur ekki fengið viðaukann skaltu hafa samband við umsjónarmann öldungaráðsins.
◼ Í smærri söfnuðunum á Íslandi er þörf fyrir boðbera, brautryðjendur og fjölskyldur þar sem faðirinn er öldungur eða safnaðarþjónn. Það er mikils virði ef einhverjir hafa tök á að hlaupa undir bagga. Hafið þá samband við farandhirðinn eða skrifið deildarskrifstofunni.
◼ Ný greinasyrpa hefur göngu sína í almennri útgáfu Varðturnsins á erlendum málum 1. febrúar 2012. Hún nefnist „Biblíustundin mín“ og er hugsuð fyrir foreldra sem eiga börn yngri en fjögurra ára. Þessar greinar munu skiptast á við greinarnar „Kenndu börnunum“ og „Fyrir unga lesendur“ og verða birtar öðru hvoru í íslensku útgáfunni.