Tillögur að kynningum
Að hefja biblíunámskeið fyrsta laugardaginn í febrúar
„Heldurðu að fólk sé hamingjusamara ef það reynir að hlýða boðum Guðs? [Gefðu kost á svari.] Í þessari grein er að finna nokkrar athyglisverðar ábendingar.“ Réttu húsráðanda eintak af Varðturninum janúar-mars og skoðið saman efnið undir einni af millifyrirsögnunum á bls. 16-17. Lestu að minnsta kosti einn ritningarstaðanna. Bjóddu honum blöðin og mælið ykkur mót til að ræða um næstu spurningu.
Varðturninn janúar-mars
„Hefurðu velt fyrir þér af hverju hafi verið svona mikið um náttúruhamfarir upp á síðkastið? [Gefðu kost á svari.] Það er athyglisvert að í Biblíunni er spádómur um ákveðið tímabil sem átti að einkennast af náttúruhamförum. [Lestu Matteus 24:7, 8.] Í þessu blaði er svarað eftirfarandi spurningum: Af hverju eru náttúruhamfarir svona tíðar nú á dögum? Eru þær refsing frá Guði? Hvaða ástæða er til að ætla að Guð bindi bráðlega enda á allar náttúruhamfarir?“
Vaknið! janúar-mars
„Að hvaða niðurstöðu ætli við komumst ef við virðum vandlega fyrir okkur það sem við sjáum af alheiminum? Er til skapari eða varð allt saman til af tilviljun? [Gefðu kost á svari.] Einn af biblíuriturunum komst að eftirfarandi niðurstöðu þegar hann velti málinu fyrir sér. [Lestu Rómverjabréfið 1:20.] Í þessu blaði kemur fram hvað vísindamenn hafa uppgötvað varðandi frumur mannslíkamans og rætt er um hvernig það varpar ljósi á málið.“