Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn janúar-mars
„Margir velta fyrir sér hvort Guð láti sig varða um sorgir og áhyggjur okkar mannanna. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Sálm 34:19.] Í greininni, sem hefst á bls. 19, er rætt um það hvernig Guð hjálpar okkur að berjast gegn minnimáttarkennd, sorg og sektarkennd.“
Vaknið! janúar-mars
„Sumir líta á Guð sem ópersónulegt afl en aðrir álíta að hann sé kærleiksrík persóna. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir þessari athyglisverðu staðhæfingu. [Lestu 1. Pétursbréf 5:6, 7.] Í greininni, sem hefst á bls. 13, er að finna svar Biblíunnar við þeirri spurningu hvort Guð sé raunveruleg persóna.“
Varðturninn janúar-mars
„Öll viljum við vera ánægð með lífið og tilveruna. Heldurðu að peningar séu lykillinn að því? [Gefðu kost á svari.] Einn af biblíuriturunum lærði að vera ánægður þó að hann hefði lítið handa á milli. [Lestu Filippíbréfið 4:11, 12.] Í þessu blaði eru dregin fram fimm ráð sem er að finna í Biblíunni um það hvernig hægt sé að vera ánægður.“
Vaknið! janúar-mars
„Sumir trúleysingjar benda á hið illa sem gert er í nafni Guðs og halda því fram að heimurinn yrði betri ef hann væri laus við trúarbrögð. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari.] Hér er tiltekin ein ástæða fyrir því að falstrú hefur valdið miklum þjáningum. [Lestu 2. Tímóteusarbréf 4:3, 4.] Í þessu blaði er bent á nokkrar veilur í röksemdafærslu trúleysingja.“