Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 9. apríl
VIKAN SEM HEFST 9. APRÍL
Söngur 123 og bæn
□ Safnaðarbiblíunám:
cl 20. kafli gr. 13-21, rammi á bls. 207 (25 mín.)
□ Boðunarskóli:
Biblíulestur: Jeremía 22-24 (10 mín.)
Nr. 1: Jeremía 23:15-23 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Af hverju verður lífið í nýjum heimi Guðs aldrei leiðigjarnt? (5 mín.)
Nr. 3: Hvíldardagsákvæðið var ekki gefið kristnum mönnum – td 20B (5 mín.)
□ Þjónustusamkoma:
5 mín.: Tilkynningar.
15 mín.: Nýtum okkur vel árbókina 2012. Notið „Bréf frá hinu stjórnandi ráði“ sem efnistök í inngangsorð, en þetta er þýðing á bréfinu í árbókinni. Biðjið áheyrendur að segja frá hvað þeim þótti sérstaklega hvetjandi og trústyrkjandi í kaflanum „Highlights of the Past Year“ á bls. 6. Bjóðið síðan áheyrendum að segja frá hvað þeim þótti standa upp úr í ársskýrslunni, en hún fylgdi Ríkisþjónustunni í mars. Hvetjið að lokum alla til að lesa árbókina.
15 mín.: „Þrjú ráð til að bæta kennslutækni okkar.“ Spurningar og svör. Þegar farið er yfir grein 2 ætti að sviðsetja stuttlega hvernig boðberi fer með húsráðanda yfir fyrstu grein á bls. 3 í bókinni Hvað kennir Biblían? Eftir að boðberinn les tilvitnunina í Job. 10:15 gefur hann húsráðandanum eins til tveggja mínútna útskýringu á því hver Job var. Spyrjið síðan áheyrendur hvers vegna þetta var ekki góð kennsluaðferð, þó að útskýringar boðberans hafi verið nákvæmar.
Söngur 10 og bæn