Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 6. ágúst
VIKAN SEM HEFST 6. ÁGÚST
Söngur 60 og bæn
□ Safnaðarbiblíunám:
cl 27. kafli gr. 1-9 (25 mín.)
□ Boðunarskóli:
Biblíulestur: Esekíel 24-27 (10 mín.)
Nr. 1: Esekíel 24:15-27 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Hver er hin sanna kirkja? – td 25A (5 mín.)
Nr. 3: Er Esekíel 18:20 í mótsögn við 2. Mósebók 20:5? (5 mín.)
□ Þjónustusamkoma:
5 mín.: Tilkynningar.
10 mín.: Ert þú tilbúinn fyrir nýtt skólaár? Ræða með þátttöku áheyrenda. Biðjið áheyrendur að segja frá sumu af því sem unga fólkið í söfnuðinum þarf að takast á við í skólanum. Útskýrið hvernig foreldrar geta notað Efnisskrá Varðturnsfélagsins, Spurningar unga fólksins, bæði bindin, og annað efni í ritum okkar í fjölskyldunáminu til að undirbúa börn sín svo að þau geti staðist freistingar og útskýrt trú sína. (1. Pét. 3:15, 16) Veljið eitt eða tvö dæmi og sýnið hvernig ráðleggingarnar í ritum okkar geta komið að góðum notum. Biðjið áheyrendur að segja frá hvernig þeir gátu gefið góðan vitnisburð þegar þeir voru í skóla.
10 mín.: Staðbundnar þarfir.
10 mín.: Tillögur að því hvernig hægt er að bjóða blöðin í ágúst. Ræða með þátttöku áheyrenda. Notið hálfa til eina mínútu til að ræða um tvær til þrjár greinar í blöðunum og hvers vegna þær eigi vel við á safnaðarsvæðinu. Notið síðan forsíðugreinar Varðturnsins og biðjið áheyrendur að stinga upp á spurningum sem vekja áhuga og ritningarstöðum sem hægt væri að lesa. Gerið það sama með forsíðugreinar Vaknið! og eina grein í viðbót í öðru hvoru blaðinu ef tíminn leyfir. Sviðsetjið hvernig bjóða megi bæði blöðin.
Söngur 97 og bæn