Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl: Varðturninn og Vaknið! Maí og júní: Notið eitthvert eftirtalinna smárita: Viltu vita svörin?, Þjáningar taka brátt enda eða Langar þig að vita meira um Biblíuna? Júlí: Bæklingurinn Gleðifréttir frá Guði eða einn af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Var lífið skapað?, Biblían – hver er boðskapur hennar?, Haltu vöku þinni!
◼ Breytingar gætu orðið á samkomudagskránni vikuna fyrir umdæmismótið til að hægt sé að rifja upp atriðin sem farið var yfir í vikunni sem hófst 22. apríl. Einum eða tveimur mánuðum eftir mótið mætti nota staðbundnar þarfir safnaðarins til þess að rifja upp þau atriði mótsins sem nýst hafa boðberum vel í boðunarstarfinu.
◼ Ef þið ákveðið að fara á umdæmismótið erlendis er hægt að finna góðar upplýsingar á vefsíðu okkar www.jw.org/is með því að smella á „Um okkur“ og velja svo „Umdæmismót“.