Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 15. júlí
VIKAN SEM HEFST 15. JÚLÍ
Söngur 48 og bæn
□ Safnaðarbiblíunám:
w08 15.4. bls. 16-19 gr. 1-9 (30 mín.)
□ Boðunarskóli:
Biblíulestur: Postulasagan 18-21 (10 mín.)
Nr. 1: Postulasagan 20:17-38 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Sonurinn er ekki jafn föður sínum – td 44B (5 mín.)
Nr. 3: Hvernig getum við sýnt að við hyggjum að andanum? – Rómv. 8:6 (5 mín.)
□ Þjónustusamkoma:
10 mín.: Náðu til hjarta biblíunemandans. (Lúkas 24:32) Umræður byggðar á eftirfarandi spurningum: (1) Þegar þú heldur biblíunámskeið af hverju er þá mikilvægt að leggja áherslu á (a) kærleika og visku Jehóva? (b) gagnið af því að fylgja meginreglum Biblíunnar? (c) nauðsyn þess að leita alltaf leiðsagnar Jehóva áður en maður tekur ákvarðanir? (2) Hvernig geturðu séð hvort þú sért að ná til hjarta nemandans þegar þú spyrð eftirfarandi spurninga? (a) Finnst þér þetta skynsamlegt? (b) Finnst þér þetta í samræmi við kærleika Guðs? (c) Hvaða gagn sérðu af því að nýta þér slíkar leiðbeiningar?
20 mín.: „Ungu bræður, sækist þið eftir þjónustuverkefni?“ Spurningar og svör. Hafðu stutt viðtal við öldung eða safnaðarþjón sem sóttist eftir þjónustustarfi sem ungur maður. Hvaða verkefni og þjálfun fékk hann áður en hann varð safnaðarþjónn? Hvernig hjálpuðu aðrir í söfnuðinum honum að taka framförum í trúnni? Hvernig hefur Jehóva blessað viðleitni hans?
Söngur 85 og bæn