Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 22. júlí
VIKAN SEM HEFST 22. JÚLÍ
Söngur 22 og bæn
□ Safnaðarbiblíunám:
w08 15.4. bls. 19-20 gr. 10-17 (30 mín.)
□ Boðunarskóli:
Biblíulestur: Postulasagan 22-25 (10 mín.)
Nr. 1: Postulasagan 22:17-30 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Á hvaða hátt erum við í heiminum en ekki af heiminum? – Jóh. 17:15, 16 (5 mín.)
Nr. 3: Hvernig eru Guð og Kristur eitt? – td 44C (5 mín.)
□ Þjónustusamkoma:
10 mín.: Ertu tilbúinn fyrir nýtt skólaár? Ræða með þátttöku áheyrenda. Biddu áheyrendur að segja frá sumu af því sem unga fólkið í söfnuðinum þarf að takast á við í skólanum. Útskýrðu hvernig foreldrar geta notað Efnisskrá Varðturnsfélagsins, vefsetrið, Spurningar unga fólksins, bæði bindin, og annað efni í ritum okkar í fjölskyldunáminu til að undirbúa börn sín svo að þau geti tekist á við þær áskoranir sem þau eiga eftir að standa frammi fyrir í skólanum. (1. Pét. 3:15, 16) Veldu eitt eða tvö dæmi og sýndu hvernig ráðleggingarnar í ritunum geta komið að góðum notum. Biddu áheyrendur að segja frá hvernig þeir gátu gefið góðan vitnisburð þegar þeir voru í skóla.
20 mín.: „Nýjar aðferðir við að kynna ritin meðal almennings.“ Spurningar og svör. Útskýrðu hvernig borð og ritatrillur eru notaðar í söfnuðinum til að kynna ritin á almannafæri. Segðu uppbyggjandi frásögur af slíku starfi.
Söngur 95 og bæn