Dagskrá fyrir vikuna sem hefst 7. apríl
VIKAN SEM HEFST 7. APRÍL
Söngur 15 og bæn
Safnaðarbiblíunám:
cl kafli 5 gr. 9-17 (30 mín.)
Boðunarskóli:
Biblíulestur: 2. Mósebók 7-10 (10 mín.)
Nr. 1: 2. Mósebók 9:20-35 (4 mín. eða skemur)
Nr. 2: Guðsríki kemur ekki fyrir tilstuðlan manna – td 13C (5 mín.)
Nr. 3: Með hvaða hætti fékk Jesús visku frá föður sínum? – Jes. 11:2; cf kafli 5 (5 mín.)
Þjónustusamkoma:
10 mín.: Hvernig bjóðum við blöðin í apríl? Ræða með þátttöku áheyrenda. Byrjaðu á því að nota báðar tillögurnar á þessari blaðsíðu til að sýna hvernig megi bjóða blöðin. Síðan skaltu fara vandlega yfir tillögurnar frá upphafi til enda. Í lokin skaltu hvetja alla til að kynna sér vel efni blaðanna og taka svo virkan þátt í að bjóða þau með gleði.
10 mín.: Gleymið ekki gestrisninni. (Hebr. 13:1,2) Ræða öldungs. Farðu yfir ráðstafanir safnaðarins fyrir minningarhátíðina. Ræddu um það hvernig við getum öll sýnt gestum og óreglulegum boðberum tilhlýðilega gestrisni. Hafðu sýnikennslu í tveim hlutum. Fyrst skaltu sýna hvernig boðberi býður einhvern velkominn sem þáði hjá okkur boðsmiða. Sýndu síðan hvernig boðberinn gerir ráðstafanir í lok samkomunnar til að geta fylgt áhuganum eftir.
10 mín.: Hvernig stóðum við okkur? Ræða með þátttöku áheyrenda. Fáðu boðbera til að segja frá hvernig þeim hefur gengið að tileinka sér tillögurnar í greininni „Tökum framförum í boðunarstarfinu – svörum mótbárum“. Biddu áheyrendur um að segja áhugaverðar starfsfrásögur.
Söngur 20 og bæn