Tillögur að kynningum
Hvað kennir Biblían?
„Í dag erum við að tala við fólk um Biblíuna [sýndu Biblíuna] en margir kalla hana orð Guðs. Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér hvernig bók skrifuð af mönnum geti með réttu kallast orð Guðs? [Gefðu kost á svari. Lestu svo 2. Pétursbréf 1:21 og grein 5 á bls. 19 og 20.] Þessi bók sýnir hvernig Biblían svarar spurningunum sem koma fram hér.“ Sýndu spurningarnar á bls. 6.
Varðturninn janúar-febrúar
„Þegar stríð brjótast út álíta báðir stríðsaðilar að Guð standi með þeim. Heldur þú að Guð leggi blessun sína yfir stríð? [Gefðu kost á svari.] Í þessu tölublaði Varðturnsins er fjallað um hvers vegna Guð háði stríð til forna og hvernig hann bindur bráðum enda á styrjaldir í eitt skipti fyrir öll.“ Lestu Sálm 46:10 og bjóddu blöðin.
Vaknið! janúar-febrúar
„Við erum að heimsækja fólk stuttlega til að benda á gagnlegt efni fyrir fjölskyldur. Allir vilja eiga friðsamt fjölskyldulíf. Hvort álítur þú að sé raunhæfara fyrir fjölskyldur að reyna að forðast alveg ágreining eða að læra að takast á við hann? [Gefðu kost á svari] Taktu eftir því sem segir í einum orðskviði Biblíunnar. [Lestu Orðskviðina 26:20.] Í þessu blaði er bent á hagnýtar leiðbeiningar í Biblíunni til að hjálpa fjölskyldum að varðveita friðinn á heimilinu.“