Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwyp grein 83
  • Hvernig get ég staðist freistingu?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig get ég staðist freistingu?
  • Ungt fólk spyr
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Gott að vita
  • Það sem þú getur gert
  • Að sigrast á mannlegum veikleikum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2001
  • Freistingar
    Vaknið! – 2017
  • „Að þér fallið ekki í freistni“
    Haltu vöku þinni!
  • Verum á verði gegn freistingum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2024
Sjá meira
Ungt fólk spyr
ijwyp grein 83
Ungur maður finnur fyrir freistingu þegar hann sér par sýna hvort öðru atlot, tveir strákar skoðar spjaldtölvu og stúlka gengur fram hjá.

UNGT FÓLK SPYR

Hvernig get ég staðist freistingu?

Páll postuli skrifaði: „Þegar ég vil gera það sem er rétt hef ég tilhneigingu til að gera það sem er illt.“ (Rómverjabréfið 7:21) Hefur þér liðið þannig? Ef svo er getur þessi grein hjálpað þér að standast freistinguna að láta undan röngum löngunum.

  • Gott að vita

  • Það sem þú getur gert

  • Hvað segja jafnaldrarnir?

Gott að vita

Freistingar eru oft nátengdar hópþrýstingi. Í Biblíunni segir: „Vondur félagsskapur spillir góðu siðferði.“ (1. Korintubréf 15:33, neðanmáls.) Þrýstingur frá öðru fólki eða fjölmiðlum getur kveikt löngun hjá þér til að gera eitthvað rangt og getur jafnvel fengið þig til að „fylgja meirihlutanum til illra verka“. – 2. Mósebók 23:2.

„Löngunin í viðurkenningu getur fengið þig til að gera eins og aðrir, bara til að þeim líki við þig.“ – Jeremy.

Til umhugsunar: Hvers vegna gæti verið erfiðara að standast freistingu ef þú hugsar of mikið um hvað öðrum finnst um þig? – Orðskviðirnir 29:25.

Kjarni málsins: Láttu ekki þrýsting frá félögunum verða til þess að þú brjótir lífsreglur þínar.

Það sem þú getur gert

Vertu með sannfæringu þína á hreinu. Ef þú veist ekki hverju þú trúir geturðu orðið eins og strengjabrúða í höndum annarra. Það er langtum betra að fylgja áminningu Biblíunnar: „Sannreynið allt, haldið fast við það sem er gott.“ (1. Þessaloníkubréf 5:21) Því betur sem þú skilur trúarskoðanir þínar þeim mun auðveldara verður að halda sér fast við þær og standast freistingar sem stangast á við þær.

Til umhugsunar: Hvernig veistu að siðferðisreglur Guðs eru þér fyrir bestu?

„Ég hef tekið eftir því að þegar ég held mig við trúarskoðanir mínar og læt ekki undan freistingu þá virða aðrir mig fyrir það. – Kimberly.

Fyrirmynd í Biblíunni: Daníel. Hann „einsetti“ sér að hlýða lögum Guðs þegar hann var líklega enn þá unglingur . – Daníel 1:8.

 Ungur maður sem er stjórnað með strengjum líkt og strengjabrúðu.

Ef þú veist ekki hverju þú trúir geturðu orðið eins og strengjabrúða í höndum annarra.

Vertu meðvitaður um veikleika þína. Í Biblíunni er talað um „girndir æskunnar“ – langanir sem eru sérstaklega sterkar þegar maður er ungur. (2. Tímóteusarbréf 2:22) Þarna er ekki bara verið að tala um kynhvöt heldur líka löngunina að falla í hópinn og vera sjálfstæður áður en maður er tilbúinn til þess.

Til umhugsunar: Í Biblíunni segir: „Það er girnd hvers og eins sem reynir hann með því að lokka hann og tæla.“ (Jakobsbréfið 1:14) Hvað freistar þín mest?

„Vertu hreinskilinn við sjálfan þig þegar þú hugleiðir hvað freistar þín mest. Rannsakaðu efni sem hjálpar þér að standast þessar freistingar og punktaðu hjá þér gagnleg ráð. Þá veistu hvernig þú getur staðist freistingu næst þegar hún verður á vegi þínum.“ – Sylvia.

Fyrirmynd í Biblíunni: Davíð. Stundum lét hann undan þrýstingi frá öðrum og jafnvel eigin löngunum. En Davíð lærði af mistökum sínum og reyndi að gera betur. „Skapa í mér hreint hjarta,“ sagði hann í bæn til Jehóva, „og veit mér nýjan, stöðugan anda.“ – Sálmur 51:12.

Taktu stjórnina. Í Biblíunni segir: „Láttu ekki hið illa sigra þig.“ (Rómverjabréfið 12:21) Það þýðir að þú þarft ekki að láta undan freistingu. Þú getur valið að gera það sem er rétt.

Til umhugsunar: Hvernig geturðu tekið stjórnina og ,endurskrifað útkomuna‘ í aðstæðum þar sem þér gæti fundist freistandi að gera rangt?

„Ég velti fyrir mér hvernig mér liði ef ég léti undan freistingunni. Myndi ég finna til léttis? Kannski, en aðeins um stuttan tíma. Liði mér vel til lengri tíma? Nei, mér liði bara verr. Er það þess virði? Nei. – Sophia.

Fyrirmynd í Biblíunni: Páll. Páll viðurkenndi að hann hafði rangar tilhneigingar en hann tók stjórnina. Hann skrifaði: „Ég aga sjálfan mig harðlega og geri líkamann að þræli mínum.“ – 1. Korintubréf 9:27, neðanmáls.

Kjarni málsins: Þú ert við stýrið þegar kemur að því að bregðast við freistingum.

Mundu að freistingar eru tímabundnar. „Margt sem var mjög freistandi þegar ég var í framhaldsskóla skiptir mig engu máli núna,“ segir Melissa sem er tvítug. „Þegar ég hugsa um það er ég fullviss um að það sem freistar mín núna er líka tímabundið og að það kemur að því að ég lít til baka og sé að það var betra að standast þær.“

Hvað segja jafnaldrarnir?

Olivia

„Þegar ég einset mér að standast freistingar og er ákveðin í að láta aðra ekki hafa áhrif á ásetning minn er auðveldara að vera óhagganleg. Þegar ég hef til dæmis ákveðið að gera ekki eitthvað, held ég mig við þá ákvörðun og velti því ekki frekar fyrir mér eða læt val annarra hafa áhrif á mína ákvörðun.“ – Olivia.

Jared

„Það er mikið þrýst á unglinga til að fara í partí og taka þátt í því sem er gert þar – drekka áfengi, nota vímuefni og stunda kynlíf. Mér finnst gott að tala opinskátt við foreldra mína um þrýstinginn. Annað sem hjálpar mér að standast freistingar er að vera upptekinn í frítíma mínum.“ – Jared.

Mayan

„Ein mesta freistingin er sú að gera eitthvað sem er ekki endilega rangt fyrir aðra en gæti verið rangt fyrir mig – eins og þegar ég vel afþreyingu. Maður þarf að vera viss um sannfæringu sína til að standast slíkan þrýsting og það krefst tíma og reynslu.“ – Mayan.

Julian

„Maður þarf að vera heiðarlegur við sjálfan sig varðandi freistingar. Það er nauðsynlegt að vita hvar á netinu er líklegast að maður rekist á siðlaust efni sem gæti freistað manns, og hvernig ætti að bregðast við þegar það gerist. Það er nauðsynlegt að vera með áætlun til að láta ekki undan freistingu.“ – Julian.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila