Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g00 8.7. bls. 3
  • Aðeins einu skrefi frá dauða

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Aðeins einu skrefi frá dauða
  • Vaknið! – 2000
  • Svipað efni
  • Jarðsprengjur — að meta kostnaðinn
    Vaknið! – 2000
  • Efnisyfirlit
    Vaknið! – 2000
  • Jörð án jarðsprengna
    Vaknið! – 2000
  • Öld ofbeldis
    Vaknið! – 2002
Sjá meira
Vaknið! – 2000
g00 8.7. bls. 3

Aðeins einu skrefi frá dauða

„Mig dreymir stundum að ég sé aftur kominn með tvo fætur. . . . Fyrir mörgum árum, þegar ég var smákrakki, var ég að leika mér við vini mína rétt hjá húsinu heima. Allt í einu varð sprenging . . . Allur hægri fóturinn tættist af mér.“ — Song Kosal, 12 ára, Kambódíu.

Jarðsprengjur drepa eða limlesta um 70 manns á hverjum degi. Flestir eru óbreyttir borgarar — menn að sinna nautgripum, konur að sækja vatn og börn að leik. Hermenn eru í minnihluta. Forsíðumyndin er af Rukiu, átta ára. Hún slasaðist í sprengingu sem varð þrem bræðrum hennar og frænku að bana.

Jarðsprengjur geta verið virkar í meira en 50 ár. Þær eru „eina vopnið sem banar fleirum eftir að átökum lýkur heldur en meðan á þeim stendur,“ segir í tímaritinu The Defense Monitor. Enginn veit hve margar jarðsprengjur liggja grafnar í jörð í heiminum en algengt er að nefndar séu að minnsta kosti 60 milljónir. Í greinargerð Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1997 segir að „komið sé fyrir 20 jarðsprengjum á móti hverri einni sem fjarlægð er. Árið 1994 voru fjarlægðar um 100.000 sprengjur en 2 milljónum komið fyrir.“

Af hverju eru stríðsherrar nútímans svona hrifnir af jarðsprengjum? Hvað kosta þær fjárhagslega og félagslega? Hver eru áhrifin á þá sem særast en lifa? Losnar jörðin nokkurn tíma við þennan ógnvald?

[Mynd credit line á blaðsíðu 3]

© ICRC/David Higgs

Rétthafi: Nic Dunlop/Panos Pictures

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila