Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • fg hluti 10 spurningar 1-4
  • Hvernig er hægt að þekkja sanna trú?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig er hægt að þekkja sanna trú?
  • Gleðifréttir frá Guði
  • Svipað efni
  • Hvernig getum við þekkt sanna tilbeiðslu?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2011
  • Tilbeiðsla sem Guð hefur velþóknun á
    Hvað kennir Biblían?
  • Um sanna tilbeiðslu
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
  • Hvernig getur þú fundið hina sönnu trú?
    Hvers krefst Guð af okkur?
Sjá meira
Gleðifréttir frá Guði
fg hluti 10 spurningar 1-4

10. HLUTI

Hvernig er hægt að þekkja sanna trú?

1. Er aðeins til ein sönn trú?

Jesús að kenna.

„Varist falsspámenn.“ — MATTEUS 7:15.

Jesús kenndi fylgjendum sínum bara eina trú, þá sönnu. Hún er eins og vegur sem liggur til eilífs lífs. Jesús sagði að fáir fyndu þennan veg. (Matteus 7:14) Guð viðurkennir aðeins tilbeiðslu sem byggist á sannleiksorði hans. Allir sannir tilbiðjendur eru sameinaðir í einni trú. – Lestu Jóhannes 4:23, 24; 14:6; Efesusbréfið 4:4, 5.

Horfðu á myndskeiðið Viðurkennir Guð hvaða trúarbrögð sem er?

2. Hvað sagði Jesús um falska kristni?

Trúarleiðtogi að prédika í kirkju. Svo leggur hann blessun sína yfir hermenn.

„Þeir segjast þekkja Guð en afneita honum með verkum sínum.“ — TÍTUSARBRÉFIÐ 1:16.

Jesús varaði við að falsspámenn myndu spilla kristinni trú. Út á við virðast þeir ástunda sanna trú. Kirkjur þeirra kalla sig kristnar. En það er hægt að átta sig á raunverulegu eðli þeirra. Hvernig? Sönn trú hefur mótandi áhrif á þá sem stunda hana þannig að þeir þekkjast af verkum sínum og eiginleikum. – Lestu Matteus 7:13-23.

3. Á hverju þekkjast sannkristnir menn?

Lítum á fimm áberandi einkenni:

  • Sannkristnir menn líta á Biblíuna sem orð Guðs. Þeir reyna að lifa eftir meginreglum hennar. Sönn trú er því ólík trúarbrögðum sem byggjast á hugmyndum manna. (Matteus 15:7-9) Sannkristnir menn breyta í samræmi við það sem þeir boða. – Lestu Jóhannes 17:17; 2. Tímóteusarbréf 3:16, 17.

  • Kristinn maður að flytja ræðu byggða á Biblíunni, boða Guðsríki, aðstoða á hamfarasvæði og hjálpa öldruðum.

    Sannir fylgjendur Jesú heiðra nafn Guðs, Jehóva. Jesús heiðraði nafn Guðs með því að kunngera það. Hann hjálpaði fólki að kynnast Guði og kenndi því að biðja þess að nafn hans myndi helgast. (Matteus 6:9) Hvaða trúfélag þekkirðu sem kunngerir nafn Guðs? – Lestu Jóhannes 17:26; Rómverjabréfið 10:13, 14.

  • Sannkristnir menn boða ríki Guðs. Guð sendi Jesú til að boða gleðifréttirnar um ríki Guðs. Ríki Guðs er eina von mannkyns. Jesús talaði um það allt til dauðadags. (Lúkas 4:43; 8:1; 23:42, 43) Hann sagði að fylgjendur sínir myndu líka boða það. Ef einhver talar við þig um Guðsríki hverrar trúar ætli hann sé? – Lestu Matteus 24:14.

  • Fylgjendur Jesú eru ekki hluti af þessum illa heimi. Þeir þekkjast á því að þeir taka engan þátt í stjórnmálum eða deilumálum samfélagsins. (Jóhannes 17:16; 18:36) Þeir forðast líka skaðlega hegðun og viðhorf heimsins. – Lestu Jakobsbréfið 4:4.

  • Sannkristnir menn bera djúpan kærleika hver til annars. Þeir læra af orði Guðs að virða fólk af öllum þjóðernum. Fölsk trúarbrögð hafa oft stutt stríðsátök með ráðum og dáð en sannkristnir menn forðast það með öllu. (Míka 4:1-3) Sannkristnir menn sýna þá óeigingirni að nota tíma sinn og fjármuni til að hjálpa öðrum og uppörva þá. – Lestu Jóhannes 13:34, 35; 1. Jóhannesarbréf 4:20.

4. Geturðu borið kennsl á sanna trú?

Hvaða trúfélag byggir allar kenningar sínar á Biblíunni, heiðrar nafn Guðs og boðar að ríki hans sé eina von mannkyns? Hverjir sýna kærleika í verki og taka ekki þátt í stríðsátökum? Hvað sýnist þér? – Lestu 1. Jóhannesarbréf 3:10-12.

Nánari upplýsingar er að finna í 15. kafla bókarinnar Hvað kennir Biblían?

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila