SÖNGUR 116
Góðvildin er máttug
Prentuð útgáfa
1. Við þökkum þér, Guð, að þekkja þinn veg,
í þínu orði sést
þín háleita viska, volduga afl,
samt vinsemd þú mönnunum hést.
2. Þinn sonur enn býður særðum að fá
hvíld sanna, lausn frá þraut.
Hve ljúft er hans ok og létt byrði hans,
við löðumst því fús á hans braut.
3. Í Guði og Jesú góðvild má sjá
sem gefur réttan tón.
Þá máttugu góðvild getum við átt
sem gerir svo sterkan Guðs þjón.
(Sjá einnig Míka 6:8; Matt. 11:28-30; Kól. 3:12; 1. Pét. 2:3.)