Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w15 1.11. bls. 5
  • Hverju trúa vottar Jehóva?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hverju trúa vottar Jehóva?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Svipað efni
  • Hverju trúa vottar Jehóva?
    Hverju trúa vottar Jehóva?
  • Hvers vegna boðum við trúna?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
  • Hverju trúa vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Hvað er ríki Guðs?
    Hvað er ríki Guðs?
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2015
w15 1.11. bls. 5
Hjón, sem eru vottar Jehóva, fræða börnin sín um Biblíuna.

FORSÍÐUEFNI | HVERJIR ERU VOTTAR JEHÓVA?

Hverju trúa vottar Jehóva?

Vottar Jehóva trúa að ,sérhver ritning sé innblásin af Guði og nytsöm‘. (2. Tímóteusarbréf 3:16) Við lítum á Biblíuna sem hagnýtan leiðarvísi sem við notum til að kynnast skaparanum og eiga innihaldsríkt líf.

Í Biblíunni segir: „Þeir játi að þú, sem berð nafnið Drottinn [„Jehóva“, New World Translation], þú einn ert Hinn hæsti yfir allri jörðinni.“ (Sálmur 83:19) Við tilbiðjum því aðeins Jehóva Guð og sem vottar hans leggjum við okkur fram um að segja öðrum frá nafni hans. – Jesaja 43:10-12.

Við erum kristin og trúum því að Jesú, „sonur Guðs“,a hafi komið til jarðar og orðið Messías. (Jóhannes 1:34, 41; 4:25, 26) Eftir dauða sinn var Jesús reistur upp til himna. (1. Korintubréf 15:3, 4) Síðar varð hann konungur í ríki Guðs. (Opinberunarbókin 11:15) Guðsríki er raunveruleg stjórn sem mun endurreisa paradís á jörð. (Daníel 2:44) „Hinir hógværu fá landið til eignar og gleðjast yfir miklu gengi,“ segir í Biblíunni. – Sálmur 37:11, 29.

„Þegar þeir lesa í Biblíunni trúa þeir að Guð sé að tala til þeirra. Þegar vandamál steðja að leita þeir lausna í orði Guðs ... Í þeirra augum er orð Guðs enn lifandi.“ – Benjamin Cherayath, kaþólskur prestur, þýska dagblaðið Münsterländische Volkszeitung.

Vottar Jehóva trúa því að meginreglur Biblíunnar gagnist fólki enn í dag. (Jesaja 48:17, 18) Þess vegna fylgjum við meginreglum hennar í hvívetna. Sem dæmi varar Biblían okkur við því að stunda nokkuð sem saurgar huga okkar og líkama. Við reykjum því hvorki né neytum eiturlyfja. (2. Korintubréf 7:1) Við forðumst einnig það sem Biblían fordæmir sérstaklega svo sem ofdrykkju, kynferðislegt siðleysi og þjófnað. – 1. Korintubréf 6:9-11.

a Biblían kallar einnig Jesú ,soninn eina‘ vegna þess að hann var sá fyrsti og eini sem Jehóva skapaði milliliðalaust. – Jóhannes 3:18; Kólossubréfið 1:13-15.

Foreldrar horfa brosandi á ungan son sinn opna pakka.

Nánari upplýsingar um trú okkar, þar á meðal af hverju við höldum ekki sumar hátíðir eða þiggjum ekki blóð, er að finna á www.jw.org/is undir flipanum UM OKKUR > SPURNINGAR OG SVÖR.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila