Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wp19 Nr. 2 bls. 8-9
  • Þegar makinn er ótrúr

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þegar makinn er ótrúr
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2019
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • BIBLÍUVERS SEM GETA HJÁLPAÐ
  • Huggun á erfiðum tímum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2016
  • Er hægt að sættast?
    Vaknið! – 1999
  • Biblían breytir lífi fólks
    Varðturninn: „Núna finnst mér ég heil, lifandi og hrein.“
  • 3 Hjálp til að þola erfið vandamál
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2018
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2019
wp19 Nr. 2 bls. 8-9
Kona á bæn.

Þegar makinn er ótrúr

„Þegar maðurinn minn sagði að hann væri að fara frá mér fyrir yngri konu langaði mig að deyja. Mér fannst það svo óréttlátt, sérstaklega þegar ég leiddi hugann að öllu sem ég hafði fórnað fyrir hann.“ – Maria frá Spáni.

„Það var eins og eitthvað hefði dáið innra með mér þegar konan mín yfirgaf mig fyrirvaralaust. Allir draumar okkar, vonir og áform urðu að engu. Stundum fannst mér eins og ég væri laus við kvíðann en sökk síðan aftur niður í mikla örvæntingu.“ – Bill frá Spáni.

ÓTRYGGÐ í hjónabandi er skelfileg. Sumir hafa að vísu getað fyrirgefið iðrunarfullum maka og byggt upp sambandið að nýju.a En það fylgir því alltaf mikil sálarangist að uppgötva að makinn hafi verið ótrúr, hvort sem hjónabandið heldur áfram eða ekki. Hvernig er hægt að vinna úr slíkum tilfinningum?

BIBLÍUVERS SEM GETA HJÁLPAÐ

Margir sem hafa verið sviknir af maka sínum hafa fundið huggun í Biblíunni þrátt fyrir sorgina. Þeir hafa komist að raun um að Guð finnur til með þeim og tekur eftir tárum þeirra. – Malakí 2:13-16.

„Þegar áhyggjur þjaka mig hressir huggun þín sál mína.“ – Sálmur 94:19.

„Þegar ég las þetta vers sá ég fyrir mér hvernig Jehóvab sefar sársauka minn blíðlega eins og samúðarfullur faðir,“ segir Bill.

„Þú ert trúföstum trúfastur.“ – Sálmur 18:26.

„Maðurinn minn sveik mig,“ segir Carmen en maðurinn hennar var henni ótrúr í marga mánuði. „En ég gat treyst Jehóva. Hann myndi aldrei bregðast mér.“

„Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni ... Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar.“ – Filippíbréfið 4:6, 7.

„Ég las þessi vers aftur og aftur,“ segir Sasha. „Guð gaf mér meiri hugarfrið eftir því sem ég bað meira til hans.“

Þau sem vitnað er í hér á undan voru stundum við það að gefast upp. En þau treystu á Jehóva Guð og sóttu styrk í Biblíuna. Bill lýsir því þannig: „Trúin gaf lífi mínu tilgang þegar allt annað virtist hrunið. Guð var með mér þó að ég ,færi um dimman dal‘ um tíma.“ – Sálmur 23:4.

a Frekari umræðu um hvort tilefni sé til að fyrirgefa er að finna í greinasyrpunni „Þegar maki er ótrúr“ í Vaknið! júlí-september 1999.

b Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummálum Biblíunnar.

Það sem hefur hjálpað mörgum

Að íhuga uppörvandi biblíuvers.

Bill segir: „Ég las Jobsbók og síðan Sálmana og strikaði undir allt sem mér fannst passa við aðstæður mínar. Ég áttaði mig á að biblíuritararnir þekktu kvöl og áhyggjur af eigin raun rétt eins og ég.“

Að leita huggunar í tónlist.

Uppbyggjandi tónlist getur hjálpað. „Þegar ég gat ekki sofið hlustaði ég á tónlist,“ segir Carmen. „Það var mikil huggun í því.“ Daniel segir: „Ég lærði að spila á gítar. Tónlistin hjálpaði mér að finna frið innra með mér.“

Að tala um tilfinningarnar.

„Ég var ekki vanur að tala um hvernig mér liði,“ segir Daniel. „En ég átti góða vini sem ég talaði við á hverjum degi. Ég létti á hjarta mínu bæði með því að skrifa þeim og tala við þá. Það hjálpaði mikið.“ Og Sasha segir: „Hjálpin frá fjölskyldu minni var gríðarlega mikilvæg. Mamma var alltaf til staðar fyrir mig og tilbúin að hlusta. Pabbi lét mig líka finna til öryggis og hann hjálpaði mér að jafna mig á mínum eigin hraða.“

Að biðja oft og reglulega.

„Ég bað stöðugt,“ segir Carmen. „Mér fannst Guð vera nálægur mér, hlusta á mig og hjálpa mér. Á þessum skelfilega tíma varð ég nánari Guði.“

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila