Guðveldisfréttir
Angóla: Nýtt boðberahámark náðist í desember, 35.034 boðberar.
Bangladess: Metaðsókn var á umdæmismótið „Trúin á orð Guðs“ í Dacca, 142 sóttu mótið og 14 létu skírast. Það er rösklega tvöfalt fleiri en skírst hafa í einu í Bangladess.
Benín: Heildaraðsókn á umdæmismótin „Trúin á orð Guðs“ var 15.633 og 403 létu skírast. Nýtt boðberahámark náðist í desember, 5351 boðberi.
Líbería: Í desember var haldið vel heppnað umdæmismót í Monróvíu sem 5158 sóttu. Í sama mánuði náðist nýtt boðberahámark, 2127 boðberar.
Madagaskar: Í desember hafði boðberum fjölgað um 11 af hundraði frá meðaltali síðasta árs og tóku 9226 þátt í boðunarstarfinu.
St. Maarten: Tvö hundruð sextíu og fimm boðberar gáfu skýrslu um starf sitt í desember sem er nýtt boðberahámark og 10 prósenta aukning frá meðaltali síðasta árs. Boðberarnir stjórnuðu 310 heimabiblíunámskeiðum.