Lærðu um elstu nútímabók mannkyns
Hvað lærðirðu af myndbandinu The Bible — Mankind’s Oldest Modern Book? Dragið fram aðalatriði myndbandsins með eftirfarandi spurningum: (1) Að hvaða leyti er Biblían einstök? (2) Nefndu dæmi um vísindalega nákvæmni Biblíunnar, þótt forn sé. (3) Hvernig getum við treyst því að Biblían hafi ekki breyst síðan hún var skrifuð? (4) Hvað er sérstakt við texta hinna fornu biblíuhandrita og af hverju er það traustvekjandi? (5) Hvernig stuðluðu John Wycliffe, Johannes Gutenberg, William Tyndale, Mary Jones og Charles Taze Russell að heimsútbreiðslu Biblíunnar? (6) Hvernig barðist kirkjan gegn Biblíunni og hvað hefur stuðlað að varðveislu hennar fram á okkar daga? (7) Í hvaða mæli hefur skipulag Jehóva staðið fyrir þýðingu og útgáfu Biblíunnar? (8) Hvernig hafa ráð Biblíunnar hjálpað fólki í baráttunni við spilafíkn (1. Tím. 6:9, 10), ótryggð, hjónaskilnaði (1. Kor. 13:4, 5; Ef. 5:28-33) og efnishyggju (Matt. 16:26)? (9) Bentu á dæmi sem sýna að hægt sé að sigrast á hatri milli þjóða, þjóðabrota og kynþátta með því að fara eftir meginreglum Biblíunnar. (10) Hvernig hefur þekking á Biblíunni gert þig hamingjusamari? (11) Hverjir heldurðu að hafi gagn af þessu myndbandi og hvernig ætlarðu að kynna það fyrir þeim?