Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn apríl-júní
„Í sumum ritum er því haldið fram að Jesús hafi ekki dáið eins og greint er frá í Biblíunni heldur hafi hann gift sig og eignast börn. Hefurðu heyrt slíkar hugmyndir? [Gefðu kost á svari.] Það er mikilvægt að vita sannleikann. [Lestu Jóhannes 17:3.] Í þessari grein er bent á af hverju hægt sé að treysta því sem Biblían segir um Jesú.“ Sýndu greinina sem hefst á bls. 26.
Vaknið! apríl-júní
„Sumir trúa á skapara en öðrum finnst það óvísindalegt og óskynsamlegt. Hvað finnst þér? [Gefðu kost á svari.] Að sögn Biblíunnar er sönn trú byggð á rökum. [Lestu 3. greinina á bls. 22 í blaðinu.] Í þessari grein er bent á nokkur rök fyrir því að til sé skapari.“
Varðturninn apríl-júní
„Margir nefna Jesú Krist ef þeir eru spurðir hver hafi haft mest áhrif á sögu mannkyns. Ert þú á sömu skoðun? [Gefðu kost á svari.] Til að vita sannleikann um Jesú getum við þurft að velja úr alls konar mótsagnakenndum hugmyndum. En í þessu biblíuversi kemur fram af hverju það er þess virði. [Lestu Jóhannes 17:3.] Í þessari sérútgáfu Varðturnsins er bent á hvað Biblían sjálf segir um Jesú og kenningar hans.“
Vaknið! apríl-júní
„Líkt og flestir kanntu sennilega að meta fegurð náttúrunnar. En sjáum við ekki líka mörg dæmi um snjalla hönnun í náttúrunni? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Sálm 104:24.] Í þessu blaði er bent á athyglisverð dæmi um hönnunarlausnir náttúrunnar og skoðað hvaða lærdóm má draga af þeim.“