Vottar Jehóva – skipulagðir til að boða fagnaðarerindið
Í meira en 100 ár hafa vottar Jehóva boðað fagnaðarerindið með skipulögðum hætti. Í þessu mesta boðunarátaki sögunnar er fagnaðarerindið flutt á mörg hundruð tungumálum og í meira en 230 löndum. (Matt. 24:14) En hvers vegna er þetta boðunarstarf nauðsynlegt? Og hvernig er hægt að framkvæma það á heimsvísu? Mynddiskurinn Jehovah’s Witnesses – Organized to Share the Good News (Vottar Jehóva – skipulagðir til að boða fagnaðarerindið) svarar þessum spurningum með því að gefa innsýn í hin margvíslegu verkefni sem tengjast alþjóðlegri starfsemi okkar. Þegar þú horfir á diskinn skaltu hugleiða eftirfarandi spurningar:
Hvernig hjálpar mynddiskurinn þér að meta að verðleikum (1) það sem söfnuður Jehóva gerir til að fagnaðarerindið verði prédikað? (2. Tím. 4:2) (2) betelfjölskyldurnar um allan heim? (3) menntunina sem umsjónarmenn og trúboðar fá? (2. Tím. 2:2) (4) gildi þess að byrja hvern dag á því að hugleiða biblíuvers og undirbúa sig fyrir safnaðarsamkomur í hverri viku? (Post. 17:11) (5) gagnið af því að sækja samkomur og mót? (Hebr. 10:24, 25) (6) þá blessun sem paradís á jörð mun færa okkur? (Jes. 11:9) (7) að fá að taka þátt í uppskerustarfinu sem stendur yfir? – Jóh. 4:35.
Þessi mynddiskur hefur reynst afbragðsverkfæri til þess að kynna fyrir áhugasömu fólki hvernig alþjóðastarf Votta Jehóva fer fram. (8) Við hvaða tækifæri væri gott að sýna biblíunemendum, ættingjum eða öðrum myndina? (9) Hvaða jákvæðu viðbrögð hefurðu fengið þegar þú hefur sýnt hana?
Þegar við íhugum allt það sem Jehóva áorkar núna koma orð sálmaskáldsins upp í hugann: „Drottinn, Guð minn, mörg eru máttarverk þín og áform þín oss til handa, ekkert jafnast á við þig.“ (Sálm. 40:6) Við skulum vera dugleg að nota þennan mynddisk til að hjálpa öðrum og kenna þeim að meta mikils Jehóva og söfnuð hans.