Tillögur að kynningum
Að hefja biblíunámskeið fyrsta laugardaginn í júlí
Lestu Jesaja 42:8 og segðu síðan: „Samkvæmt þessu á Guð sér nafn. Heldur þú að það sé mikilvægt að við notum nafn Guðs? [Gefðu kost á svari.] Sjáðu hvað stendur hér.“ Afhentu síðan húsráðanda Varðturninn júlí-september og ræddu við hann um fyrstu spurninguna á bls. 16. Bjóddu honum blöðin og mælið ykkur mót til að ræða um næstu spurningu.
Varðturninn júlí-september
„Mig langar að spyrja þig álits á mikilvægu málefni. [Flettu upp á bls. 3 og bentu á upptalninguna.] Hvað af þessu lýsir best viðhorfi þínu til Biblíunnar? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir hvað Biblían segir sjálf. [Lestu Rómverjabréfið 15:4.] Í þessu blaði er fjallað um fimm ástæður fyrir því að Biblían er einstök bók og bent á hvernig hún geti nýst okkur.“
Vaknið! júlí-september
„Flestir sem við hittum hafa einhvern tíma mátt þola ranglæti. Heldur þú að ranglæti muni einhvern tíma heyra sögunni til? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir hvað þessi spádómur segir um stjórnanda sem ætlar að binda enda á ranglætið. [Lestu Sálm 72:11-14.] Í þessu blaði er rætt um loforð Biblíunnar um réttlátan heim.“