Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.13 bls. 4
  • Tillögur að kynningum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tillögur að kynningum
  • Ríkisþjónusta okkar – 2013
  • Svipað efni
  • Tillögur að kynningum
    Ríkisþjónusta okkar – 2012
  • Tillögur að kynningum
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
  • Tillögur að kynningum
    Ríkisþjónusta okkar – 2014
  • Tillögur að kynningum
    Ríkisþjónusta okkar – 2012
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2013
km 6.13 bls. 4

Tillögur að kynningum

Að hefja biblíunámskeið fyrsta laugardaginn í júlí

„Það er eitt sem við eigum öll sameiginlegt, við gerum öll mistök. Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvort Guð geti fyrirgefið okkur ef við gerum eitthvað hræðilegt af okkur?“ [Gefðu kost á svari.] Sýndu húsráðanda greinina á bls. 15 í Varðturninum júlí-ágúst og skoðið saman efnið sem tengist fyrstu spurningunni. Lestu að minnsta kosti eitt biblíuvers sem vísað er í. Bjóddu húsráðanda blöðin og mæltu þér mót við hann til að ræða um næstu spurningu.

Athugið: Í samansöfnun 6. júlí ætti að sviðsetja þessa tillögu.

Varðturninn júlí-ágúst

„Okkur langar til að heyra hvað þér finnst um það sem stendur hér. [Lestu 1. Jóhannesarbréf 4:8.] Margir eru sammála þessum orðum. En sumum finnst Guð vera grimmur vegna þess að þeir telja að hann standi á bak við náttúruhamfarir eða leyfi að minnsta kosti að þær eigi sér stað. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari.] Í þessu blaði er bent á hvers vegna við ættum ekki að ganga út frá því sem vísu að Guð sé grimmur.“

Vaknið! júlí-ágúst

„Okkur langar að heyra álit þitt á einu. Það er fullkomlega eðlilegt að þrá betra líf og meiri lífsgæði. En heldurðu að við getum hlotið það með því að eignast meira af efnislegum hlutum? [Gefðu kost á svari.] Sjáðu hvað Jesús sagði berum orðum. [Lestu Lúkas 12:15.] Þetta tímarit fjallar um að hafa öfgalaust viðhorf til efnislegra hluta og nefnir hvernig hægt sé að hafa hemil á eyðslunni.“

Gleðifréttir frá Guði

„Við erum að heimsækja alla hér í hverfinu til að benda stuttlega á þá dásamlegu framtíð sem Biblían lofar. Margir sem við tölum við velta fyrir sér af hverju umhyggjusamur Guð horfi aðgerðarlaus upp á svona miklar þjáningar í heiminum. Heldurðu að allar þessar þjáningar séu í samræmi við upphaflega ætlun Guðs með jörðina?“ Gefðu kost á svari. Flettu svo upp á kafla 5 og lestu fyrstu tvær greinarnar og biblíuversin sem eru skáletruð. Ræðið um efnið, bjóddu bæklinginn og spyrðu hvort þú megir koma aftur til að svara næstu spurningu sem er feitletruð.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila