LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Kærleikur auðkennir sannkristna menn – varðveittu dýrmæta einingu
AF HVERJU ER ÞAÐ MIKILVÆGT? Kvöldið fyrir dauða sinn bað Jesús þess að lærisveinar hans væru „fullkomlega eitt“. (Jóh 17:23) Til að vera sameinuð verðum við að sýna kærleika sem „er ekki langrækinn“. – 1Kor 13:5.
HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ?
Við líkjum eftir Jehóva með því að leita að því góða í fari annarra.
Við fyrirgefum fúslega.
Við tökum ekki málið upp að nýju eftir að hafa leyst ágreining. – Okv 17:9.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ „BERIÐ ELSKU HVER TIL ANNARS“ – VERTU EKKI LANGRÆKINN OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
Hvernig sýndi Helen að hún var langrækin í fyrri hluta myndskeiðsins?
Hvernig gat Helen sigrast á neikvæðum hugsunum og tamið sér jákvætt viðhorf í seinni hluta myndskeiðsins?
Hvernig gat Helen að lokum stuðlað að einingu safnaðarins?
Hvern særum við mest ef við erum langrækin?