FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | 1. MÓSEBÓK 32–33
Leggur þú hart að þér til að fá blessun?
Til að hljóta blessun Jehóva verðum við að leggja hart að okkur til að láta þjónustuna við hann ganga fyrir öðru í lífinu. (1Kor 9:26, 27) Þegar við þjónum Jehóva ættum við að hafa sama viðhorf og Jakob hafði á gamals aldri. Við sýnum að við leitum í einlægni eftir blessun Jehóva með því að:
Undirbúa okkur vel fyrir safnaðarsamkomur.
Taka reglulega þátt í að boða trúna.
Gera okkar besta til að hjálpa öðrum í söfnuðinum.
Sama hversu erfiðar aðstæður þínar eru skaltu biðja stöðuglega um hjálp Jehóva og leita blessunar hans þegar þú gerir þitt besta til að þjóna honum.
SPYRÐU ÞIG: Á hvaða sviðum lífsins gæti ég lagt mig enn betur fram til að hljóta blessun Jehóva?