LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Undirbúin að segja öllum frá trúnni
Rétt eins og Jehóva kom skipulagi á Ísraelsþjóðina, skipuleggur hann söfnuð sinn nú á dögum til að gera vilja sinn. Deildarskrifstofur, farandsvæði, söfnuðir og starfshópar um allan heim þjóna þeim tilgangi að efla boðun fagnaðarboðskaparins. Við boðum öllum trúna, líka þeim sem tala ekki okkar tungumál. – Op 14:6, 7.
Hefurðu hugleitt að læra annað tungumál til að kenna fleirum sannleikann? Þótt þú hafir ekki tíma til að læra annað tungumál gætirðu notað appið JW Language til að æfa einfalda kynningu. Þegar þú notar kynninguna geturðu upplifað sömu gleði og trúsystkini okkar á fyrstu öld þegar fólk frá öðrum löndum varð agndofa af undrun að heyra „um stórfengleg verk Guðs“ á sínu móðurmáli. – Pos 2:7–11.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ VERTU VINUR JEHÓVA – BOÐUM FAGNAÐARERINDIÐ Á ERLENDU MÁLI OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
Hvenær væri gott að nota JW Language – appið?
Hvernig er hægt að nota appið?
Fólk af öllum þjóðum þarf að heyra fagnaðarboðskapinn
Hvaða tungumál talar fólk á þínu starfssvæði?
Hvað ættirðu að gera ef einhver sem sýnir áhuga á boðskapnum talar mál sem þú kannt ekki? – od 105 gr. 1–3.