Vissir þú?
Var papýrus notaður til að smíða báta á biblíutímanum?
Papýrussef.
ÞAÐ er vel þekkt að Egyptar til forna notuðu aðallega papýrus sem skrifpappír. Grikkir og Rómverjar gerðu það líka.a Færri vita að papýrus var ekki aðeins notaður við skriftir heldur líka til að smíða báta.
Tvö líkön af papýrusbátum sem fundust í grafhýsi í Egyptalandi.
Fyrir meira en 2.500 árum skrifaði Jesaja spámaður að fólk sem bjó „handan fljótanna í Kús“ hefði sent „boð yfir fljótið, sendimenn í reyrbátum yfir vötnin“. Seinna sagði Jeremía spámaður fyrir að Medar og Persar myndu gera innrás í Babýlon og brenna papýrusbáta Babýloníumanna til að koma í veg fyrir flótta. – Jes. 18:1, 2; Jer. 51:32, NW.
Biblían er innblásin af Guði þannig að það kemur biblíunemendum ekki á óvart að fornleifafundir skuli staðfesta að papýrus var notaður til að smíða báta á biblíutímanum. (2. Tím. 3:16) Fornleifafræðingar hafa fundið margvísleg ummerki um smíði papýrusbáta í Egyptalandi.
HVERNIG VORU PAPÝRUSBÁTARNIR SMÍÐAÐIR?
Málverk og lágmyndir í grafhýsum í Egyptalandi lýsa því hvernig papýrusinn var skorinn og bátar smíðaðir úr honum. Stönglarnir voru skornir og bundnir saman í búnt og nokkur búnt síðan bundin saman. Papýrusstöngullinn er þríhyrndur og þegar stönglarnir eru bundnir saman verða úr þeim þétt og sterk búnt. Samkvæmt bókinni A Companion to Ancient Egypt gátu papýrusbátar verið yfir 17 metrar á lengd og með pláss fyrir 10 eða 12 árar á hvorri hlið.
Lágmynd frá Egyptalandi sem lýsir smíði papýrusbáts.
HVERS VEGNA VAR PAPÝRUS NOTAÐUR Í BÁTASMÍÐI?
Það var auðvelt að ná í papýrus í Nílardal. Auk þess var auðvelt að smíða báta úr honum. Jafnvel eftir að timbur varð aðalefniviðurinn í stóra báta virðast veiðimenn hafa haldið áfram að nota fleka og litla báta úr papýrus.
Papýrusbátar voru í notkun í langan tíma. Gríski rithöfundurinn Plútarkos, sem var uppi á fyrstu og annarri öld, sagði að lesendur á þeim tíma þekktu vel til papýrusfleka.
a Papýrussef vex í votlendi og hægrennandi ám. Plantan getur orðið 5 metra há og neðsti hluti stöngulsins 15 sentimetrar að þvermáli.