Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wp22 Nr. 1 bls. 12-13
  • 4 | Sigrumst á hatri með hjálp Guðs

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • 4 | Sigrumst á hatri með hjálp Guðs
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2022
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Biblían segir:
  • Hvað merkir það?
  • Hvað getur þú gert?
  • Biblían breytir lífi fólks
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2013
  • Hvernig er hægt að rjúfa vítahring haturs?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2022
  • Við getum sigrast á hatri!
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2022
  • Hvernig verður vítahringur haturs til?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2022
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2022
wp22 Nr. 1 bls. 12-13
Fólk gengur í átt að stórri opinni biblíu sem varpar ljósi á það. Skuggarnir af fólkinu gefa til kynna hatrið sem bjó áður í hjarta þess.

HVERNIG ER HÆGT AÐ RJÚFA VÍTAHRING HATURS?

Sigrumst á hatri með hjálp guðs

Biblían segir:

„Ávöxtur andans er … kærleikur, gleði, friður, þolinmæði, góðvild, gæska, trú, mildi og sjálfstjórn.“ – GALATABRÉFIÐ 5:22, 23.

Hvað merkir það?

Það er mögulegt að rjúfa vítahring haturs með hjálp Guðs. Heilagur andi getur gert okkur kleift að þroska eiginleika sem við gætum aldrei tileinkað okkur án hjálpar. Frekar en að reyna að uppræta hatur í eigin mætti ættum við að treysta á hjálpina sem Guð gefur. Ef við gerum það getum við upplifað eitthvað svipað og Páll postuli lýsti með þessum orðum: „Ég get tekist á við hvað sem er vegna hans sem gefur mér kraft.“ (Filippíbréfið 4:13) Þá getum við með sanni sagt: „Hjálp mín kemur frá Jehóva.“ – Sálmur 121:2.

Hvað getur þú gert?

„Áður var ég ofbeldisfullur maður en nú er ég friðsamur.“ – WALDO

Biddu Jehóva í einlægni um heilagan anda. (Lúkas 11:13) Biddu hann að hjálpa þér að sýna góða eiginleika í lífi þínu. Rannsakaðu hvað Biblían segir um kærleika, frið, þolinmæði og sjálfstjórn en allt þetta spornar gegn hatri. Leitaðu leiða til að þroska með þér þessa eiginleika. Verðu tíma með þeim sem eru sama sinnis. Slíkir vinir geta ‚hvatt þig til kærleika og góðra verka‘. – Hebreabréfið 10:24.

Reynslusaga – WALDO

Sigraðist á ofsa og hatri

Waldo.

Waldo ólst upp við mjög erfiðar aðstæður sem fylltu hann hatri. Hann segir: „Ég lenti oft í áflogum við eiturlyfjasala … Eitt sinn fékk óvinaklíka alræmdan leigumorðingja til að drepa mig en ég slapp frá honum með stungusár.“

Waldo var mjög svekktur með það að eiginkona hans skyldi fara að rannsaka Biblíuna með vottum Jehóva. Hann segir: „Mér var meinilla við vottana og hreytti oft í þá ljótum orðum en þeir svöruðu aldrei í sömu mynt heldur héldu ró sinni.“

Síðar fór Waldo líka að kynna sér Biblíuna. Hann segir: „Ég átti ekki auðvelt með að tileinka mér það sem ég lærði. Ég var viss um að ég næði aldrei tökum á skapinu.“ En Biblían kenndi honum nokkuð sem gerði gæfumuninn.

Waldo segir: „Alejandro, biblíukennarinn minn, bað mig dag einn um að lesa Galatabréfið 5:22, 23 … Alejandro útskýrði fyrir mér að til þess að þroska með mér þessa eiginleika þyrfti ég að treysta á heilagan anda Guðs í stað þess að reyna að gera það í eigin krafti. Þessi sannleikur breytti viðhorfi mínu til muna.“

Með því að reiða sig á hjálp Guðs hefur Waldo tekist að rjúfa vítahring haturs í lífi sínu. Hann segir: „Ættingjar mínir og gömlu félagarnir eiga ekki orð yfir breytingarnar sem ég hef tekið.“ Hann segir auk þess: „Jehóva hefur gerbreytt mér. Áður var ég ofbeldisfullur maður en nú er ég friðsamur.“

Þú getur lesið meira um sögu Waldos í Varðturninum 1. nóvember 2013, bls. 12 og 13.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila