Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 144
  • Hvað segir Biblían um líkbrennslu?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvað segir Biblían um líkbrennslu?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Algengar ranghugmyndir um líkbrennslu
  • Spurningar frá lesendum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2014
  • Efnisyfirlit
    Vaknið! – 2009
  • Byrði dauðans gerð léttari
    Vaknið! – 1993
  • Hvaða framtíð bíður hinna dánu?
    Gleðifréttir frá Guði
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 144
Duftker hjá ljósmynd af látinni konu

Hvað segir Biblían um líkbrennslu?

Svar Biblíunnar

Í Biblíunni er ekki að finna sérstakar leiðbeiningar um líkbrennslu og ekki heldur nein fyrirmæli varðandi greftrun eða bálför þeirra sem hafa látist.

Biblían greinir frá tilvikum þegar trúfastir þjónar Guðs jörðuðu látna ástvini sína. Til að mynda hafði Abraham mikið fyrir því að finna Söru, eiginkonu sinni, greftrunarstað. – 1. Mósebók 23:2-20; 49:29-32.

Í Biblíunni er einnig minnst á trúfasta einstaklinga sem brenndu líkamsleifar hinna látnu. Þegar Sál konungur í Ísrael og þrír synir hans féllu í orrustu urðu lík þeirra eftir á svæði óvinarins og farið var með þau af óvirðingu. Trúfastir hermenn Ísraels fréttu það og sóttu lík Sáls og sona hans, brenndu þau og grófu síðan beinin. (1. Samúelsbók 31:8-13) Í Biblíunni er gefið í skyn að þetta hafi verið viðeigandi meðferð á líkamsleifum þessara manna. – 2. Samúelsbók 2:4-6.

Algengar ranghugmyndir um líkbrennslu

Ranghugmynd: Líkbrennsla er óvirðing við líkamann.

Staðreynd: Í Biblíunni segir að þeir sem deyja verði aftur að mold en það gerist einmitt þegar lík rotnar. (1. Mósebók 3:19) Líkbrennsla flýtir fyrir þessu ferli þannig að líkaminn verður að ösku eða mold.

Ranghugmynd: Á biblíutímanum var aðeins það fólk sem var vanþóknanlegt Guði brennt eftir dauðann.

Staðreynd: Lík sumra ótrúrra einstaklinga eins og Akans og fjölskyldu hans voru brennd. (Jósúabók 7:25) En þetta var undantekning frekar en reglan. (5. Mósebók 21:22, 23) Eins og fyrr greinir voru lík sumra trúfastra þjóna Guðs brennd eins og lík Jónatans, sonar Sáls konungs.

Ranghugmynd: Líkbrennsla kemur í veg fyrir að Guð reisi fólk upp frá dauðum.

Staðreynd: Í sambandi við upprisu fólks frá dauðum skiptir það Guð ekki máli hvort lík sé grafið, brennt, hafi týnst á hafi úti eða verið étið af villidýri. (Opinberunarbókin 20:13) Almáttugur Guð á auðvelt með að endurskapa nýjan líkama. – 1. Korintubréf 15:35, 38.

Hvort ætti að velja líkbrennslu eða greftrun?

Þegar á að velja hvernig ganga eigi frá líki er gott að hugleiða eftirfarandi.

  • Óskir hins látna. Biblían greinir frá dæmum um að ættingjar virtu óskir hins látna varðandi frágang á líkama hans eftir andlát. – 1. Mósebók 50:4, 5; 2. Mósebók 13:19.

  • Almennar siðvenjur. Þær hafa gjarnan áhrif á það hvernig gengið er frá líki. (Jóhannes 19:40) Á biblíutímanum var það venja að jarða hina dánu. (1. Mósebók 49:31; 1. Samúelsbók 28:3) Nú á dögum getur maður kosið að fylgja siðvenjum í samfélaginu varðandi frágang líks svo framarlega sem siðirnir stangast ekki á við meginreglur Biblíunnar.

  • Lagalegar kröfur. Biblían hvetur menn til að vera undirgefnir veraldlegum yfirvöldum. (Rómverjabréfið 13:1) Sums staðar eru í gildi lög um það hvernig meðhöndla skuli lík. Varðandi líkbrennslu hafa til dæmis sum yfirvöld sett því takmörk hvar öskunni er dreift.

  • Tilfinningar annarra. Biblían hvetur okkur til að taka tillit til annarra. (Filippíbréfið 2:4) Þegar við ákveðum hvernig gengið skuli frá líkamsleifum látinnar manneskju gætum við velt eftirfarandi spurningum fyrir okkur: Hvað finnst öðrum í fjölskyldunni um það hvort hinn látni verði brenndur eða grafinn? Hvernig er litið á slíka siði í samfélaginu?

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila