Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w88 1.3. bls. 17-21
  • Haltu áfram að prédika Guðsríki

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Haltu áfram að prédika Guðsríki
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvers vegna að halda áfram?
  • „Hvernig eiga þeir að heyra?“
  • Forðast blóðskuld
  • Höldum áfram að prédika!
    Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • ‚Fyrst á að prédika fagnaðarerindið‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
  • Boðun hús úr húsi — af hverju mikilvæg núna?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
  • „Farið ... og gerið allar þjóðir að lærisveinum“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2016
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1988
w88 1.3. bls. 17-21

Haltu áfram að prédika Guðsríki

„Þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma. — MATTEUS 24:14.

1, 2. (a) Hvert er þýðingarmesta starf þessarar aldar og í hvaða mæli er það unnið? (b) Hvernig sjást merki þess að Jehóva blessi það?

PRÉDIKUN fagnaðarerindisins um Guðsríki er þýðingarmesta starf okkar aldar. Það er það sem hinn alvaldi Guð vill láta gera núna og það er gert til uppfyllingar á spádómsorði hans. Viðbrögð þín við því ráða eilífum örlögum þínum. — 1. Korintubréf 9:16, 23.

2 Það er hrífandi að sjá hversu þeim fjölgar sem eiga hlutdeild í þessu prédikunarstarfi. Núna eru yfir þrjár milljónir starfandi. Fleiri en nokkru sinni fyrr þjóna í fullu starfi. Fleira áhugasamt fólk þiggur biblíunám og leggur sig fram um að læra að gera vilja Guðs.

3. Hvað getur sumum fundist um nauðsyn þess að halda áfram að prédika fagnaðarerindið?

3 Stundum getur það þó gerst að einhverjir verði uppgefnir að „gjöra það sem gott er“ og „þreytist“ á prédikunarstarfinu. (Galatabréfið 6:9; Hebreabréfið 12:3) Þeir segja kannski að búið sé að prédika fagnaðarerindið rækilega á þeirra svæði og að fólk hafi tekið afstöðu og finnist nú heimsóknir vottanna til ama. Þeim finnst lítill sem enginn árangur af starfi þeirra sem prédika þar og telja kannski að starfið sé svo gott sem fullgert þar og þurfi ekki að halda áfram. Hvað er rangt við þennan hugsunarhátt?

Hvers vegna að halda áfram?

4. Hver ætti að vera hvöt okkar til að halda áfram að prédika, jafnvel á svæðum þar sem lítið er um jákvæð viðbrögð?

4 Í fyrsta lagi ætti trúfesti okkar og úthald í prédikunarstarfinu ekki að velta á því hvort fólk hlustar á okkur eða ekki. Jeremía prédikaði í 40 ár í Jerúsalem þótt fáir leggðu eyrun við og margir væru hatrammir mótstöðumenn hans. Hvers vegna hélt hann áfram? Vegna þess að hann var að vinna verk sem Jehóva hafði boðið honum og þekking hans á því, sem átti eftir að koma fyrir Jerúsalem, neyddi hann til að halda áfram að tala. (Jeremía 1:17-19) Hann sagði: „Þá var sem eldur brynni í hjarta mínu, er byrgður væri inni í beinum mínum. Ég reyndi að þola það, en ég gat það ekki.“ (Jeremía 20:7-10) Við erum í svipaðri aðstöðu. Það er Jehóva sem hefur fyrir milligöngu Jesú Krists fyrirskipað að ‚fagnaðarerindið‘ skuli prédikað allri heimsbyggðinni. (Matteus 24:14) Þegar fólk vill ekki hlusta gefur það okkur tækifæri til að sýna hve djúpt kærleikur okkar og hollusta við Jehóva ristir, með því að halda áfram að gera það sem rétt er. (1. Jóhannesarbréf 5:3) Og hvað getur haldið aftur af okkur að reyna að aðvara náunga okkar þegar við hugleiðum hvað nánasta framtíð ber í skauti sér fyrir mannkynið? — 2. Tímóteusarbréf 4:2.

5. (a) Af hvaða annarri ástæðu ættum við að sýna úthald í prédikunarstarfinu? (b) Hvernig er prédikunarstarfið grundvöllur að dómi?

5 Auk þess var Jeremía með prédikun sinni í rauninni að boða dóm. Árið 607 f.o.t. gat enginn þeirra sem týndi lífi eða var hnepptur í þrælkun, þegar Jerúsalem féll, haldið því fram að hann vissi ekki hvers vegna þetta kæmi yfir hann. Í 40 ár hafði Jeremía varað þá við að þannig myndi fara ef þeir héldu áfram uppreisn sinni gegn Jehóva. (Samanber Esekíel 2:5.) Eins er það nú að prédikun fagnaðarerindisins „til vitnisburðar öllum þjóðum“ er grundvöllur til að fullnægja dómi. Páll postuli sýnir greinilega fram á það þegar hann segir að Kristur Jesús muni láta hegningu koma yfir „þá, sem þekkja ekki Guð, og yfir þá, sem hlýða ekki fagnaðarerindinu um Drottin vorn, Jesú.“ (2. Þessaloníkubréf 1:8, 9) Fólk verður dæmt eftir viðbrögðum sínum við fagnaðarerindinu. Prédikunarstarfið þarf því að halda áfram af fullum krafti allt til endalokanna. (Opinberunarbókin 14:6, 7) Ekkert ætti að koma í veg fyrir að þessi lífsnauðsynlegi boðskapur sé borinn til manna eins oft og mögulegt er. Það leggur mikla ábyrgð á herðar vígðum þjónum Jehóva.

6. Hvers vegna þurfum við að halda áfram að prédika enda þótt boðskapur okkar sé víðkunnur?

6 Að vísu hefur fagnaðarerindið verið prédikað mjög rækilega sums staðar í heiminum. Hins vegar er svo margt að gerast í heiminum að jafnvel þótt margir hafi heyrt boðskap okkar myndu þeir fljótt gleyma honum ef við hættum að prédika. Hugsaðu um byltingarnar, hryðjuverkin, verkföllin, hneykslismálin og hina atburðina sem eru á hvers manns vörum. Og þá er að nefna hið margbreytilega skemmtanalíf og annað sem dregur að sér athygli fólks. Við verðum að halda áfram að prédika til að halda boðskap okkar fyrir sjónum manna, þrátt fyrir allt hitt sem dregur að sér athygli þeirra.

7. Hvað er líkt með viðbrögðum margra nútímamanna og Ísraelsmanna sem Jesaja spáði fyrir, en hvers vegna ætti það ekki að draga úr prédikun okkar?

7 Ef margir reyna að hunsa okkur ættum við að muna hvers konar fólki spámaðurinn Jesaja þurfti að prédika fyrir. Jehóva sagði honum: „Því að þetta er þrjóskur lýður, lygin börn, börn sem eigi vilja heyra kenningu [Jehóva]. Þau segja við sjáendur: ‚Þér skuluð eigi sjá sýnir,‘ og við vitranamenn: ‚Þér skuluð eigi birta oss sannleikann. Sláið oss heldur gullhamra og birtið oss blekkingar. Farið út af veginum, beygið út af brautinni, komið Hinum heilaga í Ísrael burt frá augliti voru.‘“ Þrátt fyrir það var Jesaja trúfastur og sagði þjóðinni: „Því að [Jehóva] er Guð réttlætis. Sælir eru allir þeir, sem á hann vona.“ (Jesaja 30:9-11, 18) Við ættum að gera það líka. Svo lengi sem við höldum áfram mun boðskapur okkar hafa áhrif. Sumir munu fara eftir honum, aðrir ekki, en allir munu hafa tækifæri til að heyra.

„Hvernig eiga þeir að heyra?“

8. Hvað gæti breytt viðhorfum sumra sem virðast hafa tekið afstöðu gegn sannleikanum?

8 Vera má að okkur finnist að fólk á vissu starfssvæði hafi tekið skýra afstöðu og sé ráðið í að hafna boðskap okkar eða jafnvel að rísa gegn honum. En hafðu hugfast að kringumstæður fólks eru síbreytilegar. Það getur staðið frammi fyrir nýjum vandamálum og kringumstæðum á morgun, í næstu viku eða í næsta mánuði sem gerir það móttækilegt fyrir sannleikanum. Það heyrir kannski fregnir af uggvænlegum atburðum í heiminum, verður fyrir fjárhagstjóni, veikindum eða ástvinamissi. Slíkir atburðir geta vakið það og komið því til að vilja fræðast um ástæðuna fyrir erfiðleikum sínum. Ef við höldum áfram að prédika veit það hvert það á að snúa sér.

9. Hvernig má líkja prédikun okkar við starf hjálpar- og björgunarsveita þar sem náttúruhamfarir hafa orðið?

9 Við erum í líkri aðstöðu og björgunarmenn þar sem hamfarir hafa orðið, til dæmis jarðskjálfti. Sumir leita fólks á svæði þar sem fáir hafa lifað af hamfarirnar, en þrátt fyrir það að samstarfsmenn þeirra finni fleiri á lífi á öðrum stað slaka þeir ekki á leitinni eða gefast upp. Allir björgunarmenn vinna þrotlaust að því að leita að fólki, jafnvel þótt þeir telji ólíklegt að nokkur sé eftir á lífi á þeim skika þar sem þeim er ætlað að leita. En svo finna þeir stundum einhvern á lífi. Leitinni er ekki aflýst fyrr en öll von er talin úti um að nokkur sé eftir á lífi í rústunum. Leit okkar hefur enn ekki verið aflýst og við erum enn að finna þúsundir og aftur þúsundir manna sem vilja láta bjarga sér úr þessum gamla heimi og vilja lifa af ‚þrenginguna miklu.‘ (Opinberunarbókin 7:9, 14) Jafnvel á svæðum, þar sem starfað hefur verið rækilega og fæstir eru móttækilegir, næst enn einhver árangur. Og ástæðurnar til að halda áfram að prédika eru fleiri.

10. Hver er eina leiðin til að fólk geti vitað hvert það eigi að snúa sér til að finna sannleikann, að því er segir í Rómverjabréfinu 10:13, 14?

10 Nauðsynlegt er að minna fólk stöðugt á að „hver sem ákallar nafn [Jehóva], mun hólpinn verða.“ En eins og Páll segir í framhaldinu í bréfi sínu til Rómverja, „hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess að einhver prédiki?“ (Rómverjabréfið 10:13, 14) Þessi orð ættu að innprenta sérhverju okkar nauðsyn þess að við höldum ótrauð áfram að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki.

11. Hvaða ábyrgð höfum við gagnvart ungu fólki sem er að ná fullorðinsaldri?

11 Meðan endalokatímabilið hefur verið að líða hafa fæðst börn sem hafa komist til vits og ára. Oft hefur þetta unga fólk ekki gefið sannleikanum nokkurn gaum. Foreldrar þess hafa kannski hafnað boðskapnum eða jafnvel andmælt honum. En svo kemur að því að þetta unga fólk er orðið nógu þroskað til að hugsa sjálfstætt um ástand heimsmála, framtíðina og tilgang lífsins. Það þarf líka að ákalla nafn Jehóva ef það vill bjargast. „En hvernig eiga þeir að ákalla þann . . . sem þeir hafa ekki heyrt um?“ (Rómverjabréfið 10:14) Í mörgum tilvikum eru þessir táningar og ungmenni móttækileg fyrir sannleikanum, þannig að við þurfum að leita þau uppi og prédika fyrir þeim.

12. Hvernig er áframhaldandi prédikun merki um miskunn Jehóva?

12 Sú staðreynd að leiðin er enn opin til að prédika er merki um miskunn Jehóva. Pétur postuli skrifar: „Ekki er [Jehóva] seinn á sér með fyrirheitið, þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður, þar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðrunar. Álítið langlyndi Drottins vors vera hjálpræði.“ (2. Pétursbréf 3:9, 15) Löngun Jehóva til að alls konar menn bjargist birtist ekki aðeins í því að hann leyfir þolinmóður að nokkur tími líði áður en hann fullnægir dómi, heldur einnig því að hann höfðar stöðugt til manna og hvetur þá að snúa sér til sín og bjargast. (1. Tímóteusarbréf 2:4) Þegar við höldum áfram að prédika fagnaðarerindið erum við að leggja áherslu á miskunn Guðs og það er ein leið til að lofsyngja hann.

Forðast blóðskuld

13, 14. (a) Hvernig má líkja prédikunarstarfi okkar við starf varðmanns, samanber spádóm Esekíels? (b) Hvernig gat Páll sagt að hann væri „hreinn af blóði allra“ og hvernig aðeins geta vottar Jehóva sagt það nú á dögum?

13 Líkja mætti ábyrgð vígðra votta Jehóva, að vara fólk við komandi dómi Guðs, við ábyrgð Esekíels á sínum tíma. Hann var skipaður varðmaður fyrir Ísraelshús. Hlutverk hans var að vara Ísraelsmenn við þeirri aftöku, sem biði þeirra, ef þeir sneru ekki frá sínum vondu vegum. Ef hann, varðmaðurinn, gæfi ekki þá aðvörun sem honum bar myndi aftöku óguðlegra manna vera fullnægt eftir sem áður, en blóð þeirra myndi koma yfir höfuð hins hirðulausa varðmanns. Í þessu sýnir Jehóva viðhorf sitt til þess að fullnægja dómi sínum. „Ég [hef] ekki þóknun á dauða hins óguðlega, heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi. Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni! Hví viljið þér deyja, Ísraelsmenn?“ — Esekíel 33:1-11.

14 Páll postuli viðurkenndi ábyrgð sína sem varðmaður og sagði öldungunum frá Efesus: „Þess vegna vitna eg fyrir yður, daginn þennan í dag, að eg er hreinn af blóði allra.“ Hvers vegna gat hann sagt það? Hann heldur áfram: „Því að eigi hlífðist eg við að boða yður alt Guðs ráð.“ (Postulasagan 20:26, 27, Ísl. bi. 1912) Eins er það með varðmannahópinn núna, leifar hinna smurðu fylgjenda Jesú Krists. Allir þeir, ásamt rúmlega þrem milljónum félaga sinna sem hafa von um að lifa af endalok þessa heimskerfis og hljóta eilíft líf á jörð, verða að halda ótrauðir áfram að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki og aldrei að slá slöku við að vara við því að dómi Guðs verði fullnægt. Með þeim hætti forðast þeir blóðskuld.

15. Hverjir fengu merki samkvæmt 9. kafla Esekíelsbókar og hver merkti þá?

15 Prédikunarstarfi nútímans er lýst á spádómlegu máli í 9. kafla Esekíelsbókar. Þar fellir Jehóva dóm yfir Jerúsalemborg. Áður en dóminum er fullnægt er línklæddum manni með skriffæri við síðu sér sagt að ganga í gegnum borgina og setja merki á enni allra sem andvarpa og kveina yfir svívirðingum sem þar fara fram. Þegar starfi hans er lokið átti að taka af lífi alla borgarbúa nema þá sem merktir voru til björgunar. Þegar línklæddi maðurinn hafði lokið merkingarstarfi sínu tilkynnti hann: „Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér.“ (Esekíel 9:11) Hann fullnaði trúfastur það verkefni sem honum hafði verið falið.

16. (a) Hvern nú á tímum táknar línklæddi maðurinn? (b) Hvernig er réttlæting drottinvalds Jehóva okkur hvöt til að halda áfram að prédika?

16 Línklæddi maðurinn táknar smurðar leifar fylgjenda Krists, og þeir eiga sem félaga ‚mikinn múg‘ af ‚öðrum sauðum.‘ Mál málanna er núna, eins og var á tímum Esekíels, það að upphefja drottinvald Jehóva. Jehóva segir um endalok hins núverandi illa heimskerfis og stríðið á hinum mikla degi Guðs hins alvalda: „ . . . til þess að þjóðirnar viðurkenni, að ég er [Jehóva].“ (Opinberunarbókin 7:9; Jóhannes 10:16; Esekíel 39:7) Til þess að þjóðirnar megi vita það er bráðnauðsynlegt að þjónar Jehóva á jörðinni haldi áfram að prédika nafn hans og tilgang til vitnisburðar öllum þjóðum.

17, 18. (a) Hvernig er áframhaldandi prédikun okkur hjálp til að halda vöku okkar? (b) Hvað viljum við öll geta tilkynnt Jehóva þegar hann leiðir prédikunarstarfið til lykta, og hver er eina leiðin til að við getum gert það?

17 Með því að halda áfram að prédika fagnaðarerindið um ríkið höldum við árvekni okkar. Við höldum okkur vakandi fyrir mikilvægi nafns Jehóva og tilgangs. Ef við slægjum slöku við gæti von okkar um Guðsríki veiklast og ‚áhyggjur, auðæfi og nautnir lífsins‘ borið okkur afleiðis þannig að við ‚bærum ekki þroskaðan ávöxt.‘ (Lúkas 8:14) Með því að halda þrautseigir og kappsamir áfram að boða ‚fagnaðarerindið‘ erum við trúir boði meistara okkar, Jesú Krist: „Verið varir um yður, vakið! Þér vitið ekki, nær tíminn er kominn. Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“ — Markús 13:10, 33, 37.

18 Við skulum því öll halda ótrauð áfram að leita uppi ‚þá sem andvarpa,‘ svo lengi sem Jehóva gefur okkur tíma til. Megum við öll, hvort sem við erum af hópi hinna smurðu leifa eða hinna ‚annarra sauða,‘ vera trúföst í því að vinna að því verkefni okkar að prédika fagnaðarerindið um ríkið um alla heimsbyggðina til vitnisburðar öllum þjóðum. (Matteus 24:14) Þegar Jehóva sjálfur lætur þessu starfi ljúka með því að hefja ‚þrenginguna miklu,‘ megi þá eitt og sérhvert okkar geta sagt við Jehóva: „Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér.“

Manst þú?

◻ Hvað segir árangurinn af prédikun okkar um hana?

◻ Nefndu aðrar ástæður fyrir því að við ættum að halda áfram að prédika.

◻ Hvernig er prédikun okkar merki um miskunn Jehóva?

◻ Hvernig getum við haldið okkur hreinum af blóði allra manna?

◻ Hvernig hjálpar prédikunin okkur að halda vöku okkar?

[Tafla á blaðsíðu 20]

ÁRANGUR PRÉDIKUNAR SÍÐASTLIÐINNA SJÖ ÁRA

Fjöldi skírðra Viðst. minningarhátíð Tala biblíunáma

1981 119.836 5.987.893 1.475.177

1982 138.540 6.252.787 1.586.293

1983 161.896 6.767.707 1.797.112

1984 179.421 7.416.974 2.047.113

1985 189.800 7.792.109 2.379.146

1986 225.868 8.160.597 2.726.252

1987 230.843 8.965.221 3.005.048

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila