Búum okkur undir blaðastarfið í apríl
Eins og fram kemur á dagatalinu okkar fyrir 1996 verður kvöldmáltíð Drottins haldin hátíðleg 2. apríl. Látum þann mikilsverða atburð verða okkur öllum hvatning til að taka með kostgæfni þátt í að dreifa blöðunum okkar allan apríl. Hvaða tímabærar greinar munum við nota. Varðturninn beinir þann mánuð sjónum að hinu útbreidda ofbeldi í heiminum og hvernig bundinn verði endi á ofbeldi í eitt skipti fyrir öll. „Af hverju er lífið svona stutt? Mun það nokkurn tíma breytast?“ er spurt á forsíðu Vaknið! fyrir apríl-júní. Sérræðan, „Verum flekklaus meðal rangsnúinnar kynslóðar,“ á vafalaust eftir að örva okkur til aukinnar þátttöku í boðunarstarfinu.
Ef við leggjum okkur af alefli fram við að útbreiða blöðin í aprílmánuði erum við á vissan hátt að fylgja starfsherferðinni síðastliðið vor eftir, þegar við dreifðum Fréttum um Guðsríki vítt og breitt á skömmum tíma. Núna er tíminn til að skipuleggja starf okkar í vor. Margir munu vilja gerast aðstoðarbrautryðjendur. Panta skyldi aukaeintök af blöðunum. Skipuleggja mætti blaðastarfsdaga þar sem allir sem mögulega geta eru þátttakendur — um morguninn, síðdegis og/eða um kvöldið. Við skulum öll verða „gjörendur orðsins.“ Megum við geta sagt, eins og spáð var um Messías í Sálmi 69:10: „Vandlæting vegna húss þíns hefir uppetið mig.“ — Jak. 1:22; Jóh. 2:17.