Oleh_Slobodeniuk/E+ via Getty Images
Guð lofar að jörðinni verði bjargað
„Jörðin er þolmeiri en við héldum.“
Þetta var niðurstaða alþjóðlegs teymis vísindamanna sem rannsakaði loftslagsbreytingar. Ef þú trúir á skapara sem lætur sér annt um mannkynið má vera að þessi niðurstaða minni þig á þau mörgu náttúrlegu ferli sem Guð áskapaði jörðinni svo að hún geti náð sér af því sem miður fer.
Í ljósi þess hve mikið tjón mennirnir hafa unnið á jörðinni þarf samt meira til en þessi ferli til að hún bjargist. Hvers vegna getum við treyst að Guð geri eitthvað í málinu?
Lestu biblíuversin í rammanum sem fullvissa okkur um að jörðinni verði ekki aðeins bjargað heldur eigi lífríki hennar eftir að dafna.
Guð skapaði jörðina. „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.“ – 1. Mósebók 1:1.
Guð er eigandi jarðarinnar. „Jehóvaa á jörðina og allt sem á henni er.“ – Sálmur 24:1.
Guð hannaði jörðina þannig að hún endurnýjar sig. „Hann hefur grundvallað jörðina á undirstöðum hennar, aldrei að eilífu færist hún úr stað.“ – Sálmur 104:5.
Guð lofar að lífið dafni á jörðinni um alla eilífð. „Hinn sanni Guð, hann sem mótaði jörðina ... skapaði hana ekki til einskis heldur til að hún væri byggð.“ – Jesaja 45:18.
Guð lofar að menn muni lifa á jörðinni að eilífu. „Hinir réttlátu munu erfa jörðina og búa á henni að eilífu.“ – Sálmur 37:29.
Guð hannaði jörðina þannig að hún þyldi álagið af eðlilegri starfsemi mannanna. Í Biblíunni segir að Jehóva Guð muni, þegar þar að kemur, binda enda á alla þá misnotkun og arðrán sem jörðin hefur mátt þola. – Opinberunarbókin 11:18.
Í Biblíunni er því lofað að Guð breyti síðan jörðinni í heilbrigða og fallega paradís og að hann ‚ljúki upp hendi sinni og uppfylli langanir alls sem lifir‘. – Sálmur 145:16.
a Jehóva er nafn Guðs. – Sálmur 83:18.