Esekíel
15 Orð Jehóva kom aftur til mín: 2 „Mannssonur, hvernig er vínviðurinn í samanburði við allan annan við eða greinar trjánna í skóginum? 3 Er hægt að nota viðinn úr honum til einhvers? Gera menn snaga úr honum til að hengja áhöld á? 4 Nei, hann er hafður í eldivið og eldurinn brennir báða enda og svíður miðjuna. Er þá hægt að nota hann til einhvers? 5 Hann var ekki nothæfur til neins meðan hann var heill. Hvað þá þegar hann hefur brunnið og sviðnað í eldi!“
6 „Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Ég fer með íbúa Jerúsalem eins og vínviðinn meðal skógartrjánna sem er notaður í eldivið.+ 7 Ég hef snúist gegn þeim. Þeir flúðu eldinn en eldur mun samt eyða þeim. Þið munuð komast að raun um að ég er Jehóva þegar ég snýst gegn þeim.‘“+
8 „‚Ég legg landið í eyði+ því að þeir hafa svikið mig,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.“