Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Esekíel 18
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

Esekíel – yfirlit

      • Hver og einn ber ábyrgð á syndum sínum (1–32)

        • Sú sál sem syndgar skal deyja (4)

        • Sonur á ekki að gjalda fyrir syndir föður síns (19, 20)

        • Engin ánægja yfir að vondur maður deyi (23)

        • Iðrun veitir líf (27, 28)

Esekíel 18:2

Millivísanir

  • +Jer 31:29, 30

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.11.1988, bls. 24

Esekíel 18:4

Neðanmáls

  • *

    Eða „Líf allra tilheyrir“. Sjá orðaskýringar, „sál“.

  • *

    Eða „manneskja“. Sjá orðaskýringar.

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.11.1997, bls. 16

    1.11.1988, bls. 24

Esekíel 18:6

Neðanmáls

  • *

    Hebreska orðið lýsir fyrirlitningu. Hugsanlegt er að það sé skylt orði sem merkir ‚mykja‘.

Millivísanir

  • +5Mó 12:2; Jer 3:6
  • +3Mó 20:10
  • +3Mó 18:19; 20:18

Esekíel 18:7

Millivísanir

  • +Okv 14:21
  • +5Mó 24:12, 13
  • +3Mó 6:2, 4
  • +5Mó 15:11
  • +Jes 58:6, 7; Jak 2:15, 16

Esekíel 18:8

Millivísanir

  • +2Mó 22:25; Sl 15:5; Lúk 6:34, 35
  • +3Mó 19:35
  • +3Mó 19:15; 25:14; 5Mó 1:16

Esekíel 18:9

Millivísanir

  • +3Mó 18:5

Esekíel 18:10

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „úthellir blóði“.

Millivísanir

  • +3Mó 19:13
  • +1Mó 9:6; 2Mó 21:12

Esekíel 18:12

Millivísanir

  • +5Mó 15:7, 8
  • +3Mó 26:30
  • +2Kon 21:11

Esekíel 18:13

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „Blóð hans hvílir á honum sjálfum“.

Millivísanir

  • +Esk 22:12

Esekíel 18:19

Millivísanir

  • +5Mó 16:20; Róm 10:5

Esekíel 18:20

Neðanmáls

  • *

    Eða „manneskja“.

Millivísanir

  • +5Mó 24:16; Jer 31:30; Esk 18:4
  • +Jes 3:10, 11; Ga 6:7

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    15.3.2010, bls. 28-29

    1.11.1997, bls. 16

    1.5.1988, bls. 6

Esekíel 18:21

Millivísanir

  • +Jes 55:7; Esk 3:21; 33:12, 19; Pos 3:19

Esekíel 18:22

Millivísanir

  • +2Kr 33:12, 13; Sl 25:7; Jes 43:25
  • +Esk 33:16

Esekíel 18:23

Millivísanir

  • +Hlj 3:33; Esk 33:11; 1Tí 2:3, 4; 2Pé 3:9
  • +Mík 7:18

Esekíel 18:24

Millivísanir

  • +Esk 33:12, 18; Heb 10:38; 2Jó 8
  • +Okv 21:16; Esk 3:20

Esekíel 18:25

Millivísanir

  • +Job 35:2; Okv 19:3; Esk 33:17, 20
  • +5Mó 32:4
  • +Jes 55:9; Jer 2:17

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    15.10.2010, bls. 3-4

Esekíel 18:27

Neðanmáls

  • *

    Eða „sál sinni“. Sjá orðaskýringar.

Millivísanir

  • +Jes 55:7; 1Tí 4:16

Esekíel 18:29

Millivísanir

  • +1Mó 18:25; Sl 145:17; Jes 40:14

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    15.8.2013, bls. 11-12

Esekíel 18:30

Millivísanir

  • +Job 34:11; Róm 2:6

Esekíel 18:31

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „skapið ykkur nýtt hjarta og nýjan anda“.

Millivísanir

  • +Sl 34:14; Jes 1:16
  • +Sl 51:10; Jer 32:39; Esk 11:19; Ef 4:23, 24
  • +5Mó 30:15; Okv 8:36; Pos 13:46

Esekíel 18:32

Millivísanir

  • +Jer 29:11; Hlj 3:33; Esk 33:11; Lúk 15:10; 2Pé 3:9
  • +5Mó 30:16

Almennt

Esek. 18:2Jer 31:29, 30
Esek. 18:65Mó 12:2; Jer 3:6
Esek. 18:63Mó 20:10
Esek. 18:63Mó 18:19; 20:18
Esek. 18:7Okv 14:21
Esek. 18:75Mó 24:12, 13
Esek. 18:73Mó 6:2, 4
Esek. 18:75Mó 15:11
Esek. 18:7Jes 58:6, 7; Jak 2:15, 16
Esek. 18:82Mó 22:25; Sl 15:5; Lúk 6:34, 35
Esek. 18:83Mó 19:35
Esek. 18:83Mó 19:15; 25:14; 5Mó 1:16
Esek. 18:93Mó 18:5
Esek. 18:103Mó 19:13
Esek. 18:101Mó 9:6; 2Mó 21:12
Esek. 18:125Mó 15:7, 8
Esek. 18:123Mó 26:30
Esek. 18:122Kon 21:11
Esek. 18:13Esk 22:12
Esek. 18:195Mó 16:20; Róm 10:5
Esek. 18:205Mó 24:16; Jer 31:30; Esk 18:4
Esek. 18:20Jes 3:10, 11; Ga 6:7
Esek. 18:21Jes 55:7; Esk 3:21; 33:12, 19; Pos 3:19
Esek. 18:222Kr 33:12, 13; Sl 25:7; Jes 43:25
Esek. 18:22Esk 33:16
Esek. 18:23Hlj 3:33; Esk 33:11; 1Tí 2:3, 4; 2Pé 3:9
Esek. 18:23Mík 7:18
Esek. 18:24Esk 33:12, 18; Heb 10:38; 2Jó 8
Esek. 18:24Okv 21:16; Esk 3:20
Esek. 18:25Job 35:2; Okv 19:3; Esk 33:17, 20
Esek. 18:255Mó 32:4
Esek. 18:25Jes 55:9; Jer 2:17
Esek. 18:27Jes 55:7; 1Tí 4:16
Esek. 18:291Mó 18:25; Sl 145:17; Jes 40:14
Esek. 18:30Job 34:11; Róm 2:6
Esek. 18:31Sl 34:14; Jes 1:16
Esek. 18:31Sl 51:10; Jer 32:39; Esk 11:19; Ef 4:23, 24
Esek. 18:315Mó 30:15; Okv 8:36; Pos 13:46
Esek. 18:32Jer 29:11; Hlj 3:33; Esk 33:11; Lúk 15:10; 2Pé 3:9
Esek. 18:325Mó 30:16
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • 24
  • 25
  • 26
  • 27
  • 28
  • 29
  • 30
  • 31
  • 32
Biblían – Nýheimsþýðingin
Esekíel 18:1–32

Esekíel

18 Orð Jehóva kom aftur til mín: 2 „Hvað merkir þessi málsháttur sem þið farið með í Ísraelslandi: ‚Feðurnir borðuðu súr vínber en tennur sonanna urðu sljóar‘?+

3 ‚Svo sannarlega sem ég lifi,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva, ‚munuð þið ekki vitna framar í þennan málshátt í Ísrael. 4 Allar sálir tilheyra* mér. Sál föðurins og eins sál sonarins tilheyra mér. Sú sál* sem syndgar skal deyja.

5 Segjum að maður sé réttlátur og geri það sem er rétt og réttlátt. 6 Hann borðar ekki skurðgoðafórnir á fjöllunum+ og bindur ekki vonir sínar við viðbjóðsleg skurðgoð* Ísraelsmanna. Hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns+ og hefur ekki mök við konu sem er á blæðingum.+ 7 Hann fer ekki illa með neinn+ heldur skilar því sem skuldari hefur látið að veði.+ Hann rænir engan,+ gefur þeim sem er svangur sinn eigin mat+ og lætur nakinn mann fá föt.+ 8 Hann lánar ekki gegn vöxtum og stundar ekki okur+ heldur forðast hvers kyns ranglæti.+ Hann dæmir með réttlæti milli manna sem eiga í deilum.+ 9 Hann fylgir ákvæðum mínum og heldur lög mín því að hann vill vera trúr. Slíkur maður er réttlátur og fær að lifa,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.

10 ‚En segjum að hann eignist son sem verður ræningi+ eða morðingi*+ eða gerir eitthvað af öllu þessu 11 (þótt faðirinn hafi ekki gert neitt af því) – hann borðar skurðgoðafórnir á fjöllunum, svívirðir eiginkonu náunga síns, 12 fer illa með bágstadda og fátæka,+ fremur rán, skilar ekki veðsettum hlut, bindur vonir sínar við viðbjóðsleg skurðgoð,+ tekur þátt í viðurstyggilegum siðum,+ 13 stundar okur og lánar gegn vöxtum+ – þá mun sonurinn ekki lifa. Hann skal tekinn af lífi fyrir allar þær viðurstyggðir sem hann hefur framið. Hann á sjálfur sök á dauða sínum.*

14 Segjum að maður eigi son sem sér allar syndir föður síns en drýgir þær ekki sjálfur þótt hann sjái þær. 15 Hann borðar ekki skurðgoðafórnir á fjöllunum, hann bindur ekki vonir sínar við viðbjóðsleg skurðgoð Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns, 16 hann fer ekki illa með neinn, hann heldur ekki því sem hann hefur fengið að veði, hann fremur ekki rán, hann gefur þeim sem er svangur sinn eigin mat og lætur nakinn mann fá föt, 17 hann kúgar ekki fátæka, hann stundar ekki okur né lánar gegn vöxtum og hann heldur lög mín og fylgir ákvæðum mínum. Slíkur maður deyr ekki vegna synda föður síns. Hann á að halda lífi. 18 En þar sem faðir hans hafði fé af öðrum, rændi bróður sinn og gerði það sem var illt meðal fólks síns mun hann deyja fyrir synd sína.

19 Þið spyrjið nú: „Af hverju þarf sonurinn ekki að gjalda fyrir syndir föður síns?“ Sonurinn hefur gert það sem er rétt og réttlátt, fylgt öllum ákvæðum mínum og haldið þau. Þess vegna fær hann að lifa.+ 20 Sú sál* sem syndgar skal deyja.+ Sonur á ekki að gjalda fyrir syndir föður síns og faðir á ekki að gjalda fyrir syndir sonar síns. Réttlátur maður skal dæmdur eftir sínu eigin réttlæti og vondur maður eftir sinni eigin illsku.+

21 Ef vondur maður snýr frá öllum syndunum sem hann hefur drýgt, heldur ákvæði mín og gerir það sem er rétt og réttlátt heldur hann lífi. Hann skal ekki deyja.+ 22 Hann þarf ekki að svara til saka fyrir brot sín.+ Hann fær að lifa af því að hann gerir það sem er rétt.‘+

23 ‚Hef ég einhverja ánægju af því að vondur maður deyi?‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva. ‚Vil ég ekki frekar að hann snúi baki við líferni sínu og haldi lífi?‘+

24 ‚En ef réttlátur maður fer út af réttri braut, gerir það sem er illt og vinnur sömu andstyggilegu verkin og hinir illu, fær hann þá að lifa? Nei, öll réttlætisverk hans gleymast.+ Hann deyr vegna ótrúmennsku sinnar og syndanna sem hann drýgði.+

25 En þið segið: „Það sem Jehóva gerir er ekki rétt.“+ Hlustið nú, Ísraelsmenn! Er það ég sem breyti ekki rétt?+ Eruð það ekki frekar þið?+

26 Ef réttlátur maður fer út af réttri braut, gerir það sem er illt og deyr vegna þess, deyr hann vegna síns eigin ranglætis.

27 Og þegar vondur maður snýr frá því illa sem hann hefur gert og gerir það sem er rétt og réttlátt bjargar hann lífi sínu.*+ 28 Ef hann áttar sig á því illa sem hann hefur gert og hættir því heldur hann lífi. Hann skal ekki deyja.

29 En Ísraelsmenn segja: „Það sem Jehóva gerir er ekki rétt.“ Er það virkilega ég sem breyti ekki rétt, Ísraelsmenn?+ Eruð það ekki frekar þið?‘

30 ‚Þess vegna, Ísraelsmenn, ætla ég að dæma ykkur hvern og einn eftir verkum sínum,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva. ‚Snúið frá, já, snúið algerlega baki við öllum afbrotum ykkar svo að þau verði ykkur ekki til hrösunar og þið verðið sekir. 31 Látið af öllum afbrotum ykkar+ og breytið hjartalagi ykkar og hugarfari.*+ Af hverju ættuð þið að deyja,+ Ísraelsmenn?‘

32 ‚Ég hef ekki ánægju af dauða nokkurs manns,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva. ‚Snúið því við svo að þið haldið lífi.‘“+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila