Hringleikahúsið og biblíuspádómur
Eftir fréttaritara Vaknið! á Ítalíu
FORN áletrun sem fannst á Kólosseum-hringleikahúsinu í Róm kann að staðfesta óbeint spádóm Biblíunnar um eyðingu Jerúsalem. Áletrunin virðist tengd byggingu og vígslu hringleikahússins árið 80 og hljóðar svo í endurgerð prófessors Géza Alföldys við Heidelbergháskóla í Þýskalandi: „Títus Vespasíanus Sesar Ágústus keisari lét reisa hið nýja hringleikahús fyrir ágóðann af herfanginu.“ Hvaða herfangi?
„Við erum að tala um hið gríðarlega herfang sem Títus tók í stríðinu gegn Gyðingum,“ segir Alföldy, „en sérstaklega þó gullbúnaðinn og áhöldin“ úr musterinu í Jerúsalem. Þessu musteri var eytt til uppfyllingar spádómi Jesú. (Matteus 24:1, 2; Lúkas 21:5, 6) Alföldy segir að Kólosseum-hringleikahúsið — ásamt Títusarboganum fræga sem sýnir hina sigursælu Rómverja rogast heim á leið með herfangið úr stríðinu við Gyðinga — sé minnismerki þessa sögufræga sigurs Rómverja.