Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w12 15.9. bls. 13-17
  • Skólar í boði safnaðarins – sönnun þess að Jehóva elskar okkur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skólar í boði safnaðarins – sönnun þess að Jehóva elskar okkur
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • NÝTTU ÞÉR ÞJÁLFUNINA FRÁ JEHÓVA
  • Menntun handa þjónum Guðsríkis
    Ríki Guðs stjórnar
  • Nýtirðu þér fræðsluna frá Jehóva til fulls?
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
  • Hvaða þjálfun fá vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Þjónustuþjálfunarskólinn — víðar dyr og verkmiklar
    Ríkisþjónusta okkar – 2004
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
w12 15.9. bls. 13-17

Skólar í boði safnaðarins – sönnun þess að Jehóva elskar okkur

JEHÓVA er hinn mikli „lærifaðir“ okkar. (Jes. 30:20) Það er kærleikur sem knýr hann til að veita öðrum menntun og þjálfun. Jehóva elskar Jesú heitt og þess vegna sýnir hann honum „allt sem hann gerir sjálfur“. (Jóh. 5:20) Hann elskar líka okkur sem erum vottar hans, og það knýr hann til að gefa okkur „lærisveinatungu“ þegar við leggjum okkur fram um að heiðra hann og hjálpa öðrum. – Jes. 50:4.

Fræðslunefnd hins stjórnandi ráðs líkir eftir kærleika Jehóva og býður upp á tíu mismunandi skóla til að þjálfa þá sem hafa bæði löngun og aðstæður til að sækja þá. Líturðu á þessa skóla sem sönnun þess að Jehóva elski okkur?

Skoðaðu yfirlitið yfir skóla sem nú eru í boði og athugasemdir nokkurra sem hafa sótt þá. Spyrðu þig síðan hvernig þú getir haft gagn af þessari menntun frá Guði.

NÝTTU ÞÉR ÞJÁLFUNINA FRÁ JEHÓVA

Jehóva er „Guð kærleikans“ og veitir okkur þjálfun sem gefur lífinu meira gildi, býr okkur undir að takast á við erfiðleika og hjálpar okkur að hafa mikla ánægju af þjónustunni við hann. (2. Kor. 13:11) Eins og lærisveinarnir á fyrstu öld erum við vel í stakk búin til að aðstoða aðra og ,kenna þeim að halda allt það‘ sem okkur hefur verið boðið. – Matt. 28:20.

Þó að við getum líklega ekki sótt alla þessa skóla getum við haft gagn af einum þeirra eða fleirum og nýtt okkur biblíufræðsluna sem þeir veita. Við getum líka náð betri árangri í boðunarstarfinu með því að vinna með öðrum þjónum Jehóva sem hafa fengið góða þjálfun.

Spyrðu þig hvort aðstæður þínar leyfi að þú sækist eftir að fá að sitja einhvern þessara skóla.

Þjónar Jehóva líta á það sem heiður að mega styðja þessa skóla og nýta sér þá verðmætu fræðslu sem þar er í boði. Vonandi á þjálfunin eftir að hjálpa þér að nálægja þig Guði og gera þig hæfari til að bera ábyrgðina sem hann hefur falið þér, sérstaklega því áríðandi verkefni að boða fagnaðarerindið.

YFIRLIT YFIR SKÓLANA

A boy giving a Bible talk at a meeting

Boðunarskólinn

Markmið: Að þjálfa boðbera fagnaðarerindisins í boðun og kennslu.

Lengd: Ótakmörkuð.

Staður: Ríkissalur safnaðarins.

Skilyrði: Allir sem mæta reglulega á samkomur, eru sammála kenningum Biblíunnar og fara eftir meginreglum hennar.

Skráning: Umsjónarmaður Boðunarskólans skráir nemendur.

Sharon er lömuð vegna blandaðrar hreyfitaugungahrörnunar (ALS). Hún segir: „Í Boðunarskólanum hef ég lært að gera efnisleit og koma upplýsingum rökrétt á framfæri. Ég hef líka lært að hugsa um andlegar þarfir annarra, ekki bara mínar eigin.“

Arnie, sem hefur verið í farandstarfi um árabil, segir: „Á uppvaxtarárunum stamaði ég og átti erfitt með að horfa framan í fólk. Í þessum skóla hef ég fengið meira sjálfstraust og sjálfsmat mitt hefur eflst. Í honum hefur Jehóva veitt mér þjálfun þannig að ég lærði rétta öndun og einbeitingu. Ég er mjög þakklátur fyrir að geta lofað Guð í söfnuðinum og í boðunarstarfinu.“

Skóli fyrir nýliða á Betel

Markmið: Að stuðla að því að nýliðar á Betel verði farsælir í þjónustu sinni.

Lengd: 45 mínútur á viku í 16 vikur.

Staður: Betel.

Skilyrði: Þarf að tilheyra Betelfjölskyldunni eða starfa tímabundið á Betel í að minnsta kosti ár.

Skráning: Nýliðum í Betelfjölskyldunni er boðið að sækja skólann.

Demetrius sótti skólann á níunda áratug síðustu aldar og hann segir: „Í þessum skóla lærði ég betri námsvenjur og hann bjó mig vel undir framtíðarstarf á Betel. Kennararnir, námsskráin og hagnýt ráð sannfærðu mig um að Jehóva væri annt um mig og vildi hjálpa mér að vera farsæll í þjónustunni á Betel.“

Kaitlyn segir: „Ég lærði að einbeita mér að því sem var mikilvægast, að sinna andlegu málunum vel. Eftir skólann fyrir nýliða var ég Jehóva enn þakklátari og kunni betur að meta hús hans og söfnuð.“

Ríkisþjónustuskólinn

Four elders of Jehovah’s Witnesses

Markmið: Að þjálfa farandumsjónarmenn, öldunga og stundum einnig safnaðarþjóna í að sinna umsjónar- og ábyrgðarstörfum innan safnaðarins. (Post. 20:28) Rætt er um algengar aðstæður fólks, ríkjandi stefnur, og aðkallandi þarfir safnaðanna. Skólinn er haldinn á nokkurra ára fresti að ákvörðun hins stjórnandi ráðs.

Lengd: Á undanförnum árum hefur þessi skóli verið haldinn í tvo til tvo og hálfan dag fyrir farandumsjónarmenn, einn og hálfan dag fyrir öldunga og einn dag fyrir safnaðarþjóna.

Staður: Yfirleitt í ríkissal eða mótshöll.

Skilyrði: Að vera farandumsjónarmaður, öldungur eða safnaðarþjónn.

Skráning: Öldungar og safnaðarþjónar fá boð frá farandhirðinum. Deildarnefndin býður farandumsjónarmönnum að sækja skólann.

„Þó að miklu námsefni sé þjappað saman í þessum skóla endurnærir hann öldunga svo að þeir viðhaldi gleðinni og geti ,verið hugdjarfir‘ í þjónustunni við Jehóva. Hvort sem öldungar hafa þjónað stutt eða til lengri tíma læra þeir að vera góðir hirðar og að vinna saman ,einhuga‘.“ – Quinn (að neðan).

„Í skólanum var fullkomið jafnvægi milli þess að byggja upp þakklæti fyrir andleg verðmæti, vara við hættum og koma með góðar tillögur um hvernig við getum annast hjörðina. Jehóva er sannarlega góður að veita okkur þessa aðstoð.“ – Michael.

Brautryðjendaskólinn

A woman who is a pioneer minister

Markmið: Að auðvelda brautryðjendum að ,fullna þjónustu sína‘. – 2. Tím. 4:5.

Lengd: Tvær vikur.

Staður: Deildarnefndin ákveður staðsetningu, yfirleitt í ríkissal.

Skilyrði: Að hafa verið brautryðjandi í að minnsta kosti ár.a

Skráning: Brautryðjendur, sem uppfylla kröfurnar, fá boð frá farandhirðinum um að sækja skólann.

„Í skólanum lærði ég að takast á við erfiðleika sem tengjast starfinu og öðrum sviðum lífsins,“ segir Lily (til hægri). „Ég hef tekið miklum framförum í sjálfsnámi, kennslu og í að nota Biblíuna. Ég er betur í stakk búin til að hjálpa öðrum, styðja við starf öldunganna og stuðla að vexti safnaðarins.“

Brenda, sem hefur sótt skólann tvisvar, segir: „Ég fékk tækifæri til að vera algerlega upptekin af andlegum málum, að styrkja samvisku mína og að einbeita mér að því hvernig ég get hjálpað öðrum. Jehóva er svo sannarlega örlátur.“

a Ef ekki eru nógu margir nýir brautryðjendur til að fylla bekk mætti bjóða brautryðjendum sem hafa ekki sótt skólann á síðastliðnum fimm árum að sækja hann aftur.

Skóli fyrir safnaðaröldunga

Markmið: Að hjálpa öldungum að sinna ábyrgðarstörfum innan safnaðarins og að fá dýpri skilning á því hvað er fólgið í tilbeiðslunni á Jehóva.

Lengd: Fimm dagar.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni. Venjulega haldinn í ríkissal eða mótshöll.

Skilyrði: Að vera öldungur.

Skráning: Öldungar fá boð frá deildarskrifstofunni um að sækja skólann.

Hér eru nokkrar athugasemdir frá nemendum í 92. hópnum sem sótti skólann í Bandaríkjunum:

„Skólinn hefur nýst mér mjög vel. Hann hefur hjálpað mér að líta í eigin barm og sjá hvernig ég get annast hjörð Jehóva.“

„Núna get ég uppörvað aðra betur með því að vera markvissari í að benda á sannindi Biblíunnar.“

„Þessi þjálfun á eftir að gagnast mér alla ævi.“

Skóli fyrir bræður í farandstarfi og eiginkonur þeirra

Markmið: Að stuðla að árangursríkara starfi farand- og umdæmishirða í söfnuðunum þegar þeir „leggja hart að sér við boðun og fræðslu“. – 1. Tím. 5:17; 1. Pét. 5:2, 3.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni.

Skilyrði: Bróðirinn á að vera farand- eða umdæmishirðir.

Skráning: Bræður í farandstarfi og eiginkonur þeirra fá boð frá deildarskrifstofunni um að sækja skólann.

„Við kunnum enn betur að meta hvernig Jesús stýrir söfnuðinum. Við gerðum okkur grein fyrir þörfinni á að uppörva trúsystkini sem við þjónum og að styrkja eininguna innan safnaðanna. Í skólanum var okkur innprentað að þegar farandumsjónarmaður veitir ráð eða jafnvel leiðréttir trúsystkini er aðalmarkmið hans að hjálpa þeim að skilja að Jehóva elskar þau.“ – Joel sem var í fyrsta nemendahópi skólans árið 1999.

Biblíuskóli fyrir einhleypa bræður

Markmið: Að búa ógifta öldunga og safnaðarþjóna undir að taka á sig meiri ábyrgð innan safnaðar Jehóva. Margir sem útskrifast úr þessum skóla eru sendir til að þjóna þar sem þörfin er meiri innanlands. Sumir gætu verið sendir til annarra landa ef þeir bjóðast til þess. Þeim gæti einnig verið boðið að starfa tímabundið sem sérbrautryðjendur til að hefja starf eða efla það á einangruðum og afskekktum svæðum.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni. Venjulega í ríkissal eða mótshöll.

Skilyrði: Einhleypir bræður á aldrinum 23 til 62 ára sem eru við góða heilsu og vilja þjóna þar sem þörfin er meiri. (Mark. 10:29, 30) Þeir þurfa að hafa verið brautryðjendur og öldungar eða safnaðarþjónar í að minnsta kosti tvö ár.

Skráning: Áhugasamir fá upplýsingar á fundi sem haldinn er á svæðismótum.

„Ég sökkti mér niður í námsefnið og þannig gat andi Jehóva haft djúpstæð áhrif á minn innri mann,“ segir Rick sem var í 23. nemendahópnum í Bandaríkjunum. „Þegar Jehóva gefur manni verkefni styður hann mann líka í því. Ég lærði að ef ég einbeiti mér að vilja Jehóva en ekki að sjálfum mér þá styrkir hann mig.“

„Ég uppgötvaði að það er kraftaverki líkast hvernig söfnuður Guðs starfar nú á tímum,“ segir Andreas sem þjónar í Þýskalandi. „Þjálfunin bjó mig undir stafið sem var fram undan. Af mörgum dæmum úr Biblíunni lærði ég líka þennan grundvallarsannleika: Að þjóna trúsystkinum og Jehóva veitir sanna hamingju.“

Biblíuskóli fyrir hjón

A couple in the ministry together

Markmið: Að hjón fái sérstaka þjálfun til að geta komið að meira gagni í þjónustunni við Jehóva og söfnuð hans. Mörg hjón, sem útskrifast úr þessum skóla, eru send til að þjóna þar sem þörfin er meiri innanlands. Sum gætu verið send til annarra landa ef þau bjóða sig fram til þess. Þeim gæti líka verið boðið að starfa tímabundið sem sérbrautryðjendur til að hefja starf eða efla það á einangruðum og afskekktum svæðum.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Skólinn er haldinn í Bandaríkjunum og verður haldinn í nokkrum löndum til viðbótar frá og með september 2012, yfirleitt í ríkissal eða mótshöll.

Skilyrði: Hjón á aldrinum 25 til 50 ára sem eru við góða heilsu. Þau þurfa að vera í aðstöðu til að geta flutt þangað sem þörf er á fleiri boðberum og hafa sama hugarfar og Jesaja: „Hér er ég. Send þú mig.“ (Jes. 6:8) Þau þurfa auk þess að hafa þjónað Jehóva í fullu starfi síðustu tvö árin og verið gift í minnst tvö ár. Bróðirinn á að hafa verið öldungur eða safnaðarþjónn að minnsta kosti síðustu tvö árin.

Skráning: Á sérstaka mótsdeginum er haldinn fundur þar sem veittar eru upplýsingar fyrir þá sem vilja sækja um skólann. Ef fundurinn er ekki haldinn á mótum þar sem þú býrð geturðu skrifað til deildarskrifstofunnar og beðið um upplýsingar.

„Þessar átta vikur breyttu lífi okkar. Þetta er frábært tækifæri fyrir hjón sem vilja þjóna Jehóva í ríkari mæli. Við erum ákveðin í að lifa hófsömu lífi þannig að við getum notað tímann vel.“ – Eric og Corina (fyrir neðan) sem voru í fyrsta nemendahópi skólans 2011.

Biblíuskólinn Gíleað

Markmið: Að þjálfa nemendur til trúboðsstarfs á þéttbýlum svæðum, til að sinna farandumsjónarstarfi eða til að starfa á Betel. Markmiðið er að byggja upp og styrkja starfið á svæðinu og deildarskrifstofunni.

Lengd: Fimm mánuðir.

Staður: Fræðslumiðstöð Varðturnsins í Patterson í New York.

Skilyrði: Hjón sem eru trúboðar en hafa ekki sótt skólann áður, eru sérbrautryðjendur, í farandumsjónarstarfi eða á Betel. Þau eiga að hafa þjónað saman í slíku starfi samfellt síðustu þrjú árin. Þau verða að kunna ensku reiprennandi.

Skráning: Deildarnefndin getur boðið hjónum að sækja um inngöngu í skólann.

Lade og Monique frá Bandaríkjunum þjóna núna í Afríku. Lade segir: „Gíleaðskólinn bjó okkur undir að fara hvert sem er í heiminum, takast á við verkið og vinna með okkar kæru bræðrum.“

Monique bætir við: „Þegar ég nota það sem ég hef lært frá orði Guðs hef ég mikla ánægju af starfi mínu. Þessi ánægja og gleði finnst mér vera enn ein sönnunin um að Jehóva elskar okkur.“

Skóli fyrir bræður í deildarnefndum og eiginkonur þeirra

Markmið: Að þjálfa þá sem þjóna í deildarnefndum til að geta sinnt betur umsjónarstörfum á Betelheimilum, að sinna þörfum safnaðanna og hafa umsjón með farandsvæðum og umdæmum. Þeir fá einnig fræðslu um þýðingar, prentun og dreifingu rita til safnaðanna.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Fræðslumiðstöð Varðturnsins í Patterson í New York.

Skilyrði: Bróðirinn þarf að sitja í deildarnefnd eða landsnefnd eða hafa verið boðið það.

Skráning: Bræður, sem uppfylla kröfurnar, og eiginkonur þeirra fá boð frá hinu stjórnandi ráði.

Lowell og Cara, sem voru í 25. nemendahópi skólans, starfa í Nígeríu. „Ég var minntur á að óháð því hve mikið er að gera og hvaða verki ég þarf að sinna er nauðsynlegt að vinna eftir leiðum Jehóva til að geta þóknast honum,“ segir Lowell. „Einnig var lögð áhersla á að í framkomu okkar við aðra þurfum við að líkja eftir kærleikanum sem Jehóva sýnir þjónum sínum.“

„Ég hef mikið velt fyrir mér einni athugasemd,“ segir Cara. „Ef ég get ekki útskýrt eitthvað í einföldu máli þarf ég að rannsaka það betur áður en ég reyni að kenna öðrum það.“

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila