Guðveldisfréttir
Líbería: Deildarskrifstofan í Monróvíu var opnuð á ný hinn 1. september en hún hefur verið lokuð í 15 mánuði vegna borgarastyrjaldar. Greint var frá nýju boðberahámarki í september, 1977 boðberar, hinu hæsta til þessa.
Mósambík: Nýtt boðberahámark náðist í september, 28.005. Síðasta hámarkið var 25.790 í maí 1975 þannig að þetta er merkur áfangi í guðveldissögu Mósambíks.
Nepal: Boðberar voru 306 í september sem er nýtt hámark. Nærri 500 biblíunámskeið eru í gangi sem stendur.
St. Helena: Hvert einasta heimili á eynni fékk eintak af Fréttum um Guðsríki nr. 35.
Nokkur lönd hófu þjónustuárið með nýju boðberahámarki sem svarar til 5 prósenta aukningar frá meðaltali síðasta árs: Hong Kong, 4230; Madagaskar, 8749 (þar með taldir 912 reglulegir brautryðjendur); Taívan, 3497.