Verður þú viðstaddur?
Viðstaddur hvað? Landsmótið „Spádómsorð Guðs“ sem haldið verður dagana 6.-8. ágúst 1999 í Íþróttahúsinu Digranesi, Kópavogi. Við eigum í vændum mjög áhugavert og trústyrkjandi mót. En ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Gættu þess að setja mótið örugglega á dagskrá hjá þér svo að tryggt verði að þú komist alla mótsdagana, og ekki falla í þá gryfju að vera búinn að taka allt sumarfríið þegar mótið hefst. Ekkert jafnast á við hressandi samveru með trúbræðum sínum og dýrindismat af andlegu veisluborði Jehóva! (Sálm. 84:11) Verður þú viðstaddur alla mótsdagana þrjá? Við vonum það svo sannarlega.