Hvert er markmið biblíunámsstarfsins?
1 Hvers vegna stjórnum við heimabiblíunámskeiðum? Er það eingöngu í fræðsluskyni, til að bæta líf manna eða veita þeim bjartari framtíðarvon? Nei. Meginmarkmið okkar er að gera menn að lærisveinum Jesú Krists. (Matt. 28:19; Post. 14:21) Þess vegna þurfa nemendur okkar að eiga samneyti við söfnuðinn. Andlegar framfarir þeirra eru beinlínis tengdar því að meta hið kristna skipulag að verðleikum.
2 Hvernig náum við settu marki? Hvettu nemandann strax í byrjun til að sækja safnaðarsamkomur. (Hebr. 10:24, 25) Útskýrðu fyrir honum hvernig þær styrkja trúna, hjálpa honum að gera vilja Guðs og bjóða upp á heilnæman félagsskap við aðra sem vilja lofsyngja Guð. (Sálm. 27:13; 32:8; 35:18) Þegar hann sér hve annt þér er um söfnuðinn og hve þakklátur þú ert fyrir samkomurnar hvetur það hann til að sækja þær.
3 Leiða þarf nýjum fyrir sjónir að skipulag Jehóva er alþjóðlegt bræðrafélag. Sýndu þeim myndböndin Jehovah’s Witnesses — The Organization Behind the Name og Our Whole Association of Brothers. Hjálpaðu þeim að átta sig á því að Jehóva notar milljónir dyggra manna um heim allan til að koma vilja sínum í framkvæmd. Láttu hina nýju vita að þeir geti líka þjónað honum. — Jes. 2:2, 3.
4 Það er ákaflega gleðilegt að sjá biblíunemanda gerast sannur lærisveinn Jesú, enda er það markmið biblíunámsstarfsins. — 3. Jóh. 4.