Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. apríl
„Hefurðu heyrt talað um að vísindin og Biblían stangist á? [Gefðu kost á svari.] Í þessu blaði er farið ofan í saumana á aldalöngum deilum milli vísinda og trúarbragða. Í blaðinu eru líka færð rök fyrir því að sönn vísindi samræmist Biblíunni.“ Sýndu bls. 6-7 og lestu síðan Prédikarann 1:7.
Vaknið! apríl-júní
„Streita er eitt af stærstu vandamálunum sem fólk glímir við nú á tímum. Ertu ekki sammála? [Gefðu kost á svari.] Þetta var sagt nákvæmlega fyrir í Biblíunni. [Lestu 2. Tímóteusarbréf 3:1.] Þetta tímarit hefur að geyma raunhæfar leiðbeiningar sem geta hjálpað þér og fjölskyldu þinni að draga úr streitu.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Menn þurfa að takast á við margt í lífinu nú á tímum og því mætti spyrja hvort bænin geti komið okkur að raunverulegu gagni?[Gefðu kost á svari.] Margir segja að bænin veiti þeim innri styrk. [Lestu Filippíbréfið 4:6, 7.] Engu að síður getur þeim fundist að þeir fái ekki bænheyrslu. [Opnaðu Kröfubæklinginn á kafla 7.] Þessi bæklingur útskýrir hvernig bænin getur gagnast okkur sem best.“