Hvað geturðu sagt um blöðin
Varðturninn 1. apríl
„Hugsaðu þér að þú mættir velja stjórnanda til að fara með heimsyfirráð. Hvern myndirðu velja? [Gefðu kost á svari.] Í þessu tölublaði Varðturnsins er fjallað um Messías sem Guð hefur valið til að stjórna allri jörðinni. Þar kemur líka fram hvað stjórn hans mun hafa í för með sér fyrir mannkynið.“ Lestu Jesaja 9:6, 7.
Vaknið! apríl-júní
„Margir leita hamingjunnar en fáir virðast finna hana. Heldurðu að eitthvað af því sem hér er nefnt geti hjálpað fólki að lifa haminguríkara lífi? [Sýndu ramman á bls. 9 og lestu einn af ritningarstöðunum sem vísað er í.] Í þessu blaði er rætt um uppskrift Biblíunnar að sannri hamingju.“
Vaknið! apríl-júní
„Margir segja krossinn hjálpa sér að finna fyrir nálægð Guðs. En sumir velta því fyrir sér hvort það sé viðeigandi að dýrka tólið sem notað var til að lífláta Jesú eða hvort Jesús hafi dáið á krossi í raun og veru. Í greininni, sem byrjar á blaðsíðu 12, er kannað hvað Biblían segir um það.“ Lestu Postulasöguna 5:30.