Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn okt.-des.
„Það er mjög ótryggt ástand í heiminum og margir hafa þess vegna áhyggjur af framtíðinni. Hvað hjálpar þér að vera bjartsýnn? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir þessu loforði í Biblíunni. [Lestu Jesaja 65:17.] Í þessu blaði er bent á hvers vegna við getum horft jákvæð til framtíðar.“
Vaknið! okt.-des.
„Margir eru sannfærðir um að hlýnun jarðar ógni lífríki hennar. Hvernig heldurðu að greitt verði úr þessum vanda? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Jesaja 11:9.] Í þessu blaði kemur fram hvers vegna við þurfum ekki að óttast um framtíð jarðar.“
Vaknið! okt.-des.
„Heldurðu að ráðamenn heims geti stöðvað áframhaldandi hlýnun jarðar? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Jeremía 10:23.] Ég er viss um að þér þykir þetta fróðleg grein. Hún fjallar um lausn Guðs á þeim vanda sem steðjar að jörðinni.“