ÞJÁLFUNARLIÐUR 17
Skýrt og auðskilið
1. Korintubréf 14:9
YFIRLIT: Hjálpaðu áheyrendum þínum að skilja merkingu þess sem þú hefur að segja.
HVERNIG FER MAÐUR AÐ?
Rannsakaðu efnið vandlega. Til að geta útskýrt efnið á einfaldan hátt með eigin orðum þarftu að skilja efnið vel.
Notaðu stuttar setningar og einfalt orðalag. Þótt langar setningar geti átt rétt á sér skaltu kynna aðalatriði með hnitmiðuðu orðalagi og setningum.
Útskýrðu framandi hugtök. Forðastu orðalag sem áheyrendum gæti fundist framandi. Ef þú þarft að nota framandi hugtak, gamla mælieiningu eða nefnir biblíupersónu eða siðvenju skaltu gefa nánari skýringar.