Guðveldisfréttir
Skýrslur frá eftirfarandi löndum, þar sem starf okkar hefur nýlega verið opinberlega viðurkennt, greindu frá einstöku biblíunámsstarfi í nóvember:
Albanía: Alls stýrðu 99 boðberar 210 biblíunámum.
Búlgaría: Boðberarnir 296 gáfu skýrslur um 657 biblíunám.
Eystrasaltslöndin: Þessi lönd greindu samanlagt frá 2199 boðberum og þeir stýrðu 4632 biblíunámum.
Fjöldi uppörvandi skýrslna hefur einnig borist frá Afríku:
Mið-Afríkulýðveldið: Í október náðist nýtt hámark 1600 boðbera og þeir gáfu skýrslur um 2966 heimabiblíunám.
Rúanda: Í nóvember stýrðu þeir 1762 boðberar, sem lögðu inn starfsskýrslur, 6270 heimabiblíunámum.
Tsjad: Þar voru 345 boðberar í október og alls hlýddu 654 á dagskrá sérstaka mótsdagsins sem flutt var sex sinnum.
Í sameiningu gefa þessar skýrslur mjög skýra og athyglisverða sönnun um að Jehóva sé núna að uppfylla fyrirheit sitt varðandi uppskerustarfið á okkar dögum: „Hinn minnsti skal verða að þúsund og hinn lítilmótlegasti að voldugri þjóð. Ég, [Jehóva], mun hraða því, þegar að því kemur.“ — Jes. 60:22.