Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. maí
„Má ég sýna þér hlýleg orð úr Biblíunni? [Lestu Matteus 22:37.] Hvað heldurðu að þetta þýði? [Gefðu kost á svari.] Hér í blaðinu er grein sem heitir ‚Notaðu hugann og hjartað til að leita Guðs.‘ Heldur þú að sönn trú eigi sér aðeins rætur í hjartanu eða þarf líka að beita huganum? Svarið er mjög athyglisvert.“
Vaknið! apríl-júní
„Við lítum ef til vill á það sem sjálfsagðan hlut að hafa þak yfir höfuðið. Hins vegar eru milljónir flóttamanna um heim allan sem reika hjálparvana um og finna aldrei öruggt skjól. Tímaritið Vaknið! ræðir um undirrót vandans og einnig um það loforð Biblíunnar að einhvern tíma munu allir eiga öruggan samastað.“
Kynning fyrir boðunarstarfið
„Heldur þú að við mennirnir getum einhvern tíma lifað hamingjuríku lífi hér á jörðinni? [Gefðu kost á svari og lestu Opinberunarbókina 21:3, 4. Skýrðu versin stuttlega.] Biblían segir að Guðsríki komi þessu til leiðar. Og hún segir einnig hvernig þetta ríki kemur á réttlæti og góðu ástandi hér á jörð.“ Lestu Daníel 2:44 og skýrðu versið stuttlega. Síðan gætirðu spurt: „Veistu hvaða ríki þetta er? [Gefðu kost á svari.] Hér er átt við Guðsríki sem okkur er kennt að biðja um í Faðirvorinu. [Lestu Matteus 6:9, 10.] Þetta er ríkisstjórn sem mun fara með yfirráð yfir allri jörðinni.“ [Bjóddu síðan rit sem tengjast efninu.]