Hvað geturðu sagt um blöðin
Varðturninn 1. ágúst
„Sumir álíta að Jesús hafi verið mesta mikilmenni sögunnar. Aðrir draga í efa að hann hafi nokkurn tíma verið til. Heldurðu að það skipti einhverju máli hverju við trúum um hann? [Gefðu kost á svari og lestu síðan Postulasöguna 4:12.] Hvaða sannanir eru fyrir því að Jesús hafi verið til í raun og veru? Það er fjallað um það í þessu blaði.“
Vaknið! júlí-september
„Margir velta fyrir sér hvort börn vaxi of fljótt úr grasi í öllum hraðanum sem einkennir umheiminn. Finnst þér þetta vera áhyggjuefni? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Prédikarann 3:1, 4.] Börn ættu ekki að þurfa að bera byrðar fullorðinna. Í þessu blaði er fjallað um það hvernig foreldrar geta varðveitt bernsku barnanna.“
Kynning á Kröfubæklingnum
Eftir að hafa dreift tímaritunum Varðturninum og Vaknið! gætir þú spurt viðtakandann hvort þú megir lesa stutta grein fyrir hann. Ef hann samþykkir það opnaðu þá Kröfubæklinginn á kafla 5. Bentu á spurningarnar í upphafi kaflans og biddu hann að hlusta eftir svarinu við fyrstu spurningunni á meðan þú lest fyrstu greinina. Spyrðu spurningarinnar þegar þú hefur lokið við að lesa greinina og hlustaðu á svar hans. Bjóddu honum bæklinginn og ef hann þiggur hann skaltu gera ráðstafanir til að koma aftur og fá svar hans við næstu tveim spurningum við þennan kafla.