Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. september
„Heldurðu ekki að fólk myndi fyllast vantrú ef sagt yrði frá atburði sem þessum í fréttum? [Sýndu myndina á forsíðu blaðsins. Gefðu síðan kost á svari og lestu Markús 4:39.] Hvaða sannanir höfum við fyrir því að kraftaverkin sem Jesús gerði hafi verið ósvikin og raunveruleg? Þetta tölublað Varðturnsins fer ofan í saumana á því.“
Vaknið! júlí-september
„Margir glíma við vandamál á vinnustað. Sumir eru jafnvel lagðir í einelti af vinnufélögunum. Vissirðu að í Biblíunni eru leiðbeiningar sem geta hjálpað okkur að takast á við þetta? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Orðskviðina 15:1.] Í þessu blaði eru gagnlegar tillögur um hvernig megi stuðla að friði á vinnustað.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Við höfum verið að tala við fólk um það hvers vegna það eru svona mörg trúarbrögð í heiminum, þó er Biblían aðeins ein. Hver heldur þú að sé ástæðan fyrir trúarbragðaóreiðunni? [Gefðu kost á svari. Flettu upp á 13. kafla í Kröfubæklingnum og lestu upphafsspurningarnar.] Þú færð fullnægjandi svör við þessum spurningum með því að lesa þennan kafla.“